Prestur sakaður um að hafa þuklað á konu á líknardeild Kjartan Kjartansson skrifar 20. mars 2019 23:51 Presturinn vann við Kirkju heilags Páls í Austin í Texas. Vísir/Getty
Kaþólskur prestur í Texas hefur verið handtekinn og ákærður fyrir að hafa þuklað á konu í líknarmeðferð þegar hann las henni síðustu sakramentin. Biskupsdæmið þar sem presturinn starfar segir að hann hafi þegar verið leystur frá störfum vegna annarra áskana um ósæmilega hegðun.AP-fréttastofan segir að Gerold Langsch, prestur í Austin, hafi verið handtekinn á fimmtudag í síðustu viku og ákærður vegna atviksins sem átti sér stað 5. október. Presturinn er 75 ára gamall og gæti átt yfir höfði sér árs fangelsi verði hann fundinn sekur. Lögreglan í Austin segir að Langsch hafi farið með síðustu sakramentin yfir konu sem var í líknarmeðferð á heimili sínu vegna fylgikvilla sykursýki. Konan, sem er enn á lífi, sakar hann um að hafa borið á hana smyrsl, nuddað brjóst hennar og klipið í geirvörtu hennar. Biskupsdæmið í Austin segir að presturinn hafi verið leystur frá störfum í síðasta mánuði eftir að önnur kvörtun um óviðeigandi hegðun í garð fullorðinnar manneskju barst. Sú kvörtun hafi ekki varðað líkamlega snertingu.
Bandaríkin Trúmál Mest lesið Lögreglan komin á vettvang þegar í ljós kom að bíllinn var rétt hjá Innlent Fólkið sem sé ekki á Kjarval velti þessu sannarlega fyrir sér Innlent Tilfærsla styrkja til tekjulægri gæti seinkað rafbílavæðingu Innlent Rannsókn á hrottalegri frelsissviptingu og fjárkúgun lokið Innlent NEL telur orðfæri lögreglumanna ekki tilefni til endurupptöku Innlent Sex látnir eftir að þyrla brotlenti í New York Erlent Lögreglumaður dæmdur fyrir að beita kylfu við handtöku Innlent Ingólfur tapar meiðyrðamáli: „Þá í að halda áfram að nauðga og beita ungar konur ofbeldi?“ Innlent Hellisheiði lokað til vesturs og fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng í alla nótt Innlent Umfangsmikil uppbygging við andapollinn sé „stórlega ýkt“ Innlent Fleiri fréttir Sex látnir eftir að þyrla brotlenti í New York Ógnarúlfur risinn upp frá dauðum Andrew Tate beint byssu að andliti konu og hótað henni Fæddi barn ókunnugrar konu vegna mistaka Kynntu „sterka stjórn sem er fær um aðgerðir“ Kynna nýja ríkisstjórn Þýskalands Hátt í hundrað látnir eftir að þak skemmtistaðar féll Máttu ekki banna fréttamenn AP Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum Leggur á 104 prósenta tollgjöld á Kína Segjast hafa handsamað Kínverja sem börðust með Rússum Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju „En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Tollahækkanir Trump taka gildi TikTok hólpið í bili Rak sex eftir fund með umdeildum samsæringi Russell Brand ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot Sendi Dönum tóninn Sjá meira