Ólafi William Hand, upplýsingafulltrúa og forstöðumanni markaðsmála á alþjóðasviði Eimskips, var sagt upp hjá fyrirtækinu í síðasta mánuði samhliða breytingum á skipuriti fyrirtækisins og ráðningu á nýjum forstjóra.
Viðskiptablaðið greinir frá þessu. Ólafur hafði starfað sem upplýsingafulltrúi fyrirtækisins í um tíu ár.
Blaðið greinir frá því að Ólafur muni starfa að ákveðnum verkefnum hjá Eimskip fram á vor, en Elín Hjálmsdóttir mannauðsstjóri tekur við starfi upplýsingafulltrúa og Matthías Matthíasson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs verður í forsvari fyrir markaðsdeildina.
Ólafur William var í lok síðasta árs dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir ofbeldi í garð barnsmóður sinnar, meðal annars fyrir að taka hana hálstaki. Forsaga málsins eru áralangar deilur Ólafs við barnsmóður sína vegna umgengnisréttar. Hann hefur áfrýjað dómnum til Landsréttar.
Ólafi William Hand sagt upp hjá Eimskip

Tengdar fréttir

Dæmdur fyrir ofbeldi gegn barnsmóður
Ólafur William Hand, upplýsingafulltrúi og forstöðumaður markaðsmála á alþjóðasviði Eimskips, hefur verið dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir ofbeldi í garð barnsmóður sinnar að viðstöddu barni þeirra í júlí 2016.

Ólafur áfrýjar dómnum til Landsréttar
Greint var frá því í dag að Ólafur hefði verið dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir ofbeldi í garð barnsmóður sinnar, m.a. fyrir að taka hana hálstaki, umræddan dag.