Cavani kláraði Síle | Átta liða úrslitin klár í Copa America Henry Birgir Gunnarsson skrifar 25. júní 2019 07:15 Edinson Cavani fagnar marki sínu í nótt. vísir/getty Úrugvæ tryggði sér toppsætið í C-riðli Copa America í nótt er liðið vann 1-0 sigur á Síle. Edinson Cavani með eina markið á 82. mínútu. Þetta var fyrsti leikur þjóðanna síðan 2015 en þá var Cavani sendur af velli. Framherjinn trompaðist nefnilega þegar Gonzalo Jara, varnarmaður Síle, setti hönd sína á afturendann hans. Jara fékk svo þriggja leikja bann fyrir athæfið. Síle fær að keppa við Kólumbíu en Kólumbía er eina liðið sem hefur unnið alla sína leiki á mótinu. Úrúgvæ mætir Perú. Ekvador varð svo að sætta sig við að sitja eftir þar sem liðið náði ekki að leggja sprækt lið Japan sem hefur komið þægilega á óvart í þessu móti. Ekvador og Japan gerðu 1-1 jafntefli þar sem Shoya Nakajima kom Japan yfir en Angel Mena jafnaði fyrir Ekvadora.Átta liða úrslit: Brasilía - Paragvæ Venesúela - Argentína Kólumbía - Síle Úrúgvæ - Perú Copa América