Hazard-bræðurnir sáu um Rússa Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. nóvember 2019 18:45 Thorgan og Eden Hazard skoruðu þrjá af fjórum mörkum Belga gegn Rússum. vísir/getty Belgía er enn fullt hús stiga í I-riðli undankeppni EM 2020 eftir 1-4 útisigur á Rússlandi í dag. Belgar hafa unnið alla níu leiki sína í riðlinum með markatölunni 34-2. Eden Hazard var maður leiksins. Hann lagði fyrsta mark leiksins upp fyrir bróður sinn, Thorgan, og skoraði síðan annað og þriðja mark Belga. Romelu Lukaku skoraði það fjórða og síðasta. Georgiy Dzhikiya lagaði stöðuna fyrir Rússa. Í sama riðli vann Kasakstan 1-3 sigur á San Marinó á útivelli. Wales á enn möguleika á að komast upp úr E-riðli. Strákarnir hans Ryans Giggs gerðu góða ferð til Aserbaídsjan og unnu 0-2 sigur. Kieffer Moore og Harry Wilson skoruðu mörk Walesverja sem mæta Ungverjum í hreinum úrslitaleik um 2. sætið í E-riðli á þriðjudaginn. Í G-riðli vann Slóvenía 1-0 sigur á Lettlandi. Eina mark leiksins var sjálfsmark Igors Tarasovs. Slóvenar eiga enn möguleika á að komast upp úr riðlinum. EM 2020 í fótbolta
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti