Sport

Dagskráin í dag: Ný þáttaröð og Atvinnumennirnir okkar

Anton Ingi Leifsson skrifar
Patrick er einn gesta kvöldsins.
Patrick er einn gesta kvöldsins. vísir/s2s

Beinum útsendingu frá íþróttaviðburðum hefur snarfækkað vegna útbreiðslu kórónuveirunnar eins og gefur að skilja. Til að mæta því hafa Stöð 2 Sport og hliðarrásir verið dagskrársettar með nýju dagskrárefni og endursýningum af safnefni til að stytta íþróttaþyrstum stundirnar.

Sportið í dag er á dagskrá á Stöð 2 Sport alla virka daga klukkan 15.00. Upptökur af fyrri þáttum má nálgast á sjónvarpsvef Stöðvar 2. Stöð 2 Sport er hluti af Sportpakkanum.

Í dag er fyrsti þáttur úr nýrri þáttaröð sem ber nafnið Topp fimm. Stöð 2 Sport fékk nokkra markaskorara úr Pepsi Max deild karla til að velja topp fimm mörkin sín á ferlinum. Í þessum þáttum segja þeir okkur frá listanum sínum og segja skemmtilega frá hverju marki fyrir sig. Þrír leikmenn koma fyrir í hverjum þætti og völdu þeir sjálfir sinn topp fimm lista. Leikmennirnir í þessum þættir eru Baldur Sigurðsson, Hörður Sveinsson og Patrick Pedersen. Þátturinn er í umsjón Gumma Ben og verða á föstudögum næstu fimm vikurnar.

Stöð 2 Sport 2

Atvinnumennirnir okkar verða á dagskrá Stöðvar 2 Sports 2 frá klukkan 11.00 og fram eftir degi. Þar verður meðal annars rætt við Katrínu Tönju Davíðsdóttur og Rúrik Gíslason. Þar á eftir eru átta þættir af Fyrir Ísland þar sem Gummi Ben hittir leikmenn íslenska landsliðsins í knattspyrnu og kynnist strákunum okkar ásamt því að sjá hvernig þeir búa í heimi atvinnumannsins, æfa og spila.

Stöð 2 Sport 3

Dominos, Dominos og meiri Dominos-deildin á Stöð 2 Sport 3 í dag. Keflavík - Skallagrímur, Haukar - Snæfell, Snæfell - Keflavík og Valur - Haukar verða á meðal þeirra leikja sem verða sýndir úr Dominos-deild kvenna í dag á Stöð 2 Sport 3.

Stöð 2 eSport

GT Kappakstur, Vodafone-deildin og svo margt, margt skemmtilegt má finna á Stöð 2 eSport í dag.

Stöð 2 Golf

Hvað gerðist á Ryder Cup í Frakklandi 2018? Útsendingin frá lokadeginum sem og heimildamynd um mótið sjálft má finna á Stöð 2 Golf í dag en einnig er árið 2014 á PGA-túrnum gert upp.

Alla dagskrá dagsins má finna á vef Stöðvar 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×