Erlent

Löglegar aðgerðir í Abu Ghraib

Lögmaður eins hermannanna bandarísku, sem ákærðir eru fyrir að misþyrma föngum í Abu Ghraib fangelsinu í Írak, segir ekkert ólöglegt við aðgerðir hermannanna. Skjólstæðingur hans, Charles Graner, er meðal annars sakaður um að hafa skipað föngum að leggjast allsberir hver ofan á annan og að hafa haft þá í hundaól. Lögmaðurinn segir aðgerðir hermannanna einungis hafa verið til þess fallnar að hafa stjórn á föngunum. Þá segir hann klappstýrur í Bandaríkjunum oft mynda pýramída með því að leggjast hver á aðra og eins setji foreldrar oft ólar á börn sín. Í hvorugu tilvikinu detti hins vegar nokkrum í hug að tala um pyntingar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×