Hefði UFC fengið að ráða hefði Gunnar barist sem aðalstjarnan á UFC-kvöldinu í Lundúnum í mars en þar vildu menn sjá Liverpool-strákinn Darren Till mæta Gunnari.
Ekkert varð úr þeim bardaga því Till sagðist vera veikur þrátt fyrir að margar vikur ættu eftir að líða þar til að bardaganum kæmi. Hann var svo ekki veikari en það, að Till skemmti sér konunglega í Brasilíu skömmu eftir að segjast veikur.

Talaði um aðra en Gunnar
„Þegar kemur að bardagastíl væri ég slæmur mótherji fyrir Till. Ég er fyrir neðan hann á styrkleikalistanum og hann er á fínum skriði. Áhættan að taka bardaga á móti mér er slík að þeir líta væntanlega á það sem svo að það sé ekki þess virði,“ segir Gunnar sem útskýrir flótta Till að einhverju leyti.„Ég veit svo sem ekkert um þetta nákvæmlega, en ég held að Till sé ekkert svakalega spenntur fyrir því að mæta mér. Mér finnst það á öllu miðað við hvernig hann talar á netinu og hvernig hann talar svo seinna mér.“
„Till talaði mikið um alla aðra en mig þrátt fyrir að það hefði verið flottur bardagi í Liverpool. Það var búið að tala um það. Síðan gæti bara vel verið að umboðsmaður hans segi honum að gleyma því að mæta mér. Það er ekki vitlaus pæling hjá þeim,“ segir Gunnar við íþróttadeild.

Ekkert internetrót
Till var búinn að rífa kjaft á netinu í svolítinn tíma og sagðist meira en klár í að mæta Gunnari í búrinu. Annað kom svo á daginn. Gunnar var orðinn svo þyrstur í að berjast að hann tók þátt í umræðunum á Twitter í fyrsta sinn ásamt þjálfara sínum, John Kavanagh.„John hefur alltaf aðeins verið að kynda undir mönnum af og til. Ég er mjög lítið í því. Það er ekki minn stíll og er bara ekki ég. Ég nenni ekki að vera að djöflast í mönnum á netinu,“ segir Gunnar.
„Ég gerði það aðeins við Darren Till og hélt að það hefði heppnast. Þá hugsaði ég með mér að kannski myndi ég gera þetta oftar, en síðan gerðist ekki neitt.“
„Þetta er ekki minn stíll. Ég þarf aðeins að fara út fyrir mitt hugarfar til þess að fara að róta í mönnum á internetinu. Það er ekki ég,“ segir Gunnar Nelson.
Viðtalið má sjá í spilaranum efst í fréttinni.
So @ufc have offered @GunniNelson v @darrentill2 main event #UFCLondon we've agreed so hoping to hear confirmation soon how do you guys like the match up? I'm reminded of the Thatch fight, big strong striker but I think Till is tougher challenge. One way to find out... pic.twitter.com/b7U81FpzBf
— Coach Kavanagh (@John_Kavanagh) January 24, 2018