Sport

Poborsky hættur

Karel Poborsky er hættur að leika með tékkneska landsliðinu
Karel Poborsky er hættur að leika með tékkneska landsliðinu NordicPhotos/GettyImages
Tékkneski landsliðsmaðurinn Karel Poborsky hefur tilkynnt að hann sé hættur að spila með landsliðinu. Poborsky er 34 ára gamall og lék 118 landsleiki fyrir hönd Tékka, sem er met. Hann spilaði sinn fyrsta landsleik fyrir tékkneska landsliðið árið 1994 og lék um tíma með enska úrvalsdeildarfélaginu Manchester United. Hann leikur nú með liði Ceske Budejovice í heimalandinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×