Lífið

MMR: Íslendingar bjartsýnir á gott gengi Hatara

Birgir Olgeirsson skrifar
Hatari hefur nú þegar vakið mikla athygli úti.
Hatari hefur nú þegar vakið mikla athygli úti. Mynd/Rúv
Áttatíu prósent svarenda könnunar MMR telja að Hatari muni komast upp úr undariðlinum og keppa til úrslita í Eurovision í Tel Aviv í næstu viku.

Um fjórðungur svarenda spáir því að Hatari muni enda í einum af fimm efstu sætum keppninnar og 25 prósent spá sveitinni í sjötta til tíunda sæti.

Þá sögðust 14% svarenda telja að lag Hatara muni lenda í 11.-15. sæti, 13% sögðust telja það að það muni lenda í 16.-20. sæti og 4% spáðu 21.-25. sæti.

4% spáðu gengi á bilinu 26.-30. sæti, 3% kváðust telja að íslenska lagið myndi enda í 31.-35. sæti og 13% voru svartsýn á ágæti lagsins og töldu það líklegt til að reka lestina í 36.-14. sæti. Óhætt er að segja að landsmenn séu nokkuð bjartsýnni á gott gengi Hatara heldur en þeir voru fyrir Our choice, framlagi Íslands á síðasta ári en þá spáðu 34% Íslandi einu af átta neðstu sætum keppninnar (36.-43. sæti).

Jákvæðni gagnvart gengi Íslands í Eurovision keppni þessa árs var mest hjá yngri aldurshópum og spáðu 64% svarenda á aldrinum 18-29 ára og 58% þeirra 30-49 ára íslenska laginu einu af tíu efstu sætum keppninnar en 32% svarenda undir 50 ára aldri spáði laginu einu af fimm efstu sætunum. Hins vegar spáðu rétt 35% svarenda á aldrinum 50-67 ára og 25% þeirra 68 ára og eldri að Hatari næði að hreppa sæti á meðal þeirra tíu efstu.

Þá reyndust svarendur búsettir á höfuðborgarsvæðinu örlítið bjartsýnni á gengi íslensku strákana heldur en landsbyggðarbúar en 51% svarenda af höfuðborgarsvæðinu sögðust telja að íslenska framlagið myndi lenda í einu af tíu efstu sætum keppninnar, samanborið við 45% þeirra af landsbyggðinni. Landsbyggðarbúar reyndust hins vegar líklegri til að spá Hatara einu af 6 neðstu sætum keppninnar (17%) heldur en þau af höfuðborgarsvæðinu (10%). Lítill munur reyndist á afstöðu eftir kyni.

Stuðningsfólk Pírata (58%), Viðreisnar (56%) og Samfylkingar (56%) reyndust líklegri en stuðningsfólk annarra flokka til að spá því að íslenska framlagið muni lenda í einu af tíu efstu sætum söngvakeppninnar. Stuðningsfólk Miðflokks (35%) og Framsóknar (18%) reyndust hins vegar líklegast af stuðningsfólki allra flokka til að spá því að Hatari lendi í 36.-41. sæti keppninnar í ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.