Tekjur 66°Norður jukust um 600 milljónir króna Hörður Ægisson skrifar 8. maí 2019 06:15 Helgi Rúnar Óskarsson, forstjóri 66°Norður.
Sjóklæðagerðin 66°Norður skilaði um 100 milljóna króna rekstrarhagnaði (EBITDA) á síðasta ári og dróst hagnaðurinn saman um liðlega 60 milljónir frá fyrra ári. Tekjur fyrirtækisins, sem rekur tíu verslanir hér á landi og tvær í Kaupmannahöfn, jukust hins vegar um rúmlega 600 milljónir á árinu og námu samtals 4,47 milljörðum króna. Heildartap 66°Norður á árinu 2018 var um 488 milljónir króna og skýrist einkum af gengistapi vegna láns frá lúxemborgíska félaginu 66 North Holding Lux, sem á núna 99,99 prósent alls hlutafjár í 66°Norður, sem var breytt í hlutafé í desember síðastliðnum að fjárhæð um 3,2 milljarðar króna. Hlutafjáraukningin kom til í kjölfar kaupa bandarísks fjárfestingarsjóðs á tæplega helmingshlut í félaginu, eins og greint var frá í Markaðinum í júlí í fyrra, í því skyni að tryggja fjármögnun á áframhaldandi uppbyggingu 66°Norður erlendis. Hjónin Helgi Rúnar Óskarsson, forstjóri fyrirtækisins, og Bjarney Harðardóttir stjórnarformaður fara með meirihluta í félaginu en þau komu fyrst inn í hluthafahópinn árið 2011. Allar skuldir fyrirtækisins við innlendar lánastofnanir, samtals um 2,24 milljarðar króna, voru greiddar upp í fyrra og í árslok 2018 voru einu langtímaskuldir fyrirtækisins lán í evrum að jafnvirði um 157 milljónir króna. Heildareignir 66°Norður nema um 3,94 milljörðum króna og er eiginfjárhlutfall félagsins rúmlega 73 prósent borið saman við aðeins fjögur prósent árið áður.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Hækkar tolla á Kína og samþykkir níutíu daga „hlé“ fyrir tugi ríkja Viðskipti erlent Árni Oddur tekur við formennsku Viðskipti innlent Hafi ógnað öryggi flugsins en fær samt bætur Neytendur Trump boðar „stórfellda“ tolla á lyf en Róbert hefur ekki áhyggjur Viðskipti erlent Börn fá gefins Barnabónus með helstu nauðsynjun Viðskipti innlent Starfsmenn ríkisins þiggja boð ríkisins Viðskipti innlent Ísland brotlegt í pitsaostamálinu Viðskipti innlent Röntgenveldið tekur yfir rekstur Bullseye Viðskipti innlent Arctic Adventures kaupir Happy Campers Viðskipti innlent Hitastigið í hagkerfinu hærra en áður var talið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Börn fá gefins Barnabónus með helstu nauðsynjun Árni Oddur tekur við formennsku Starfsmenn ríkisins þiggja boð ríkisins Bein útsending: SFF dagurinn - Breyttur heimur ÍL-sjóður: LV gengur að tilboði ríkisins Ísland brotlegt í pitsaostamálinu Hitastigið í hagkerfinu hærra en áður var talið Enn ein eldrauð opnun Fjögur ráðin í nýtt gagna- og gervigreindarteymi Varist Jóhanna Vigdís til liðs við Keystrike Röntgenveldið tekur yfir rekstur Bullseye Arctic Adventures kaupir Happy Campers Lækkanir halda áfram Leigja út fjórar vélar og taka eina á leigu Hækkanir í Kauphöllinni á ný Nýr fríverslunarsamningur við Úkraínu samþykktur Greiðslur og rafræn skilríki komin í samt lag Ráðinn forstöðumaður fyrirtækjasviðs Ormsson Truflanir í heimabönkum vegna bilunar hjá Reiknistofu bankanna Tvö hundruð konur töluðu um orkumál á KÍO-deginum Um 44 prósent hlynnt inngöngu í Evrópusambandið Kaupa fyrir 234 milljónir og eiga rúman þriðjung Fátt rökrétt við lækkanirnar Vöruviðskiptin tíu milljörðum óhagstæðari en í mars í fyrra Áframhaldandi hrun í Kauphöllinni Metfjöldi farþega í mars OK með nýjan fjármálastjóra Tollar Trumps kalli á að Ísland aðlagi sig að breyttum leikreglum „Að fá sér Bryndísarpizzu skiptir máli“ Wow fékk bestu þjónustu Airbus eftir að Icelandair valdi Boeing Sjá meira