Menning

Fríir söfnunartónleikar

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Guðný og Gunnar Kvaran ætla að hefja leikinn á laugardaginn.
Guðný og Gunnar Kvaran ætla að hefja leikinn á laugardaginn.
Guðný Einarsdóttir er organisti Háteigskirkju. Hún er að skipuleggja tónleika þar fyrsta laugardag hvers mánaðar í vetur klukkan 17. Þeir fyrstu eru nú á laugardaginn, þá spilar Gunnar Kvaran sellóleikari með henni. Ekkert kostar inn en baukur hafður opinn fyrir orgelsjóð. „Ég er búin að vera eitt ár hér í Háteigskirkju og mér fannst strax áhugavert og mikilvægt að endurlífga orgelsjóð sem búinn er að vera til í mörg, mörg ár. Það hefur alltaf staðið til að fá vandað orgel á svalirnar, eins og gert var ráð fyrir við hönnun kirkjunnar.“

Hljóðfærið sem nú er notað keypti Marteinn Hunger til bráðabirgða þegar hann var organisti kirkjunnar á sínum tíma. Það er lítið sjö radda orgel sem hefur ágætan hljóm en ekki mikla breidd, að sögn Guðnýjar.

„Þessi kirkja ber alveg stærra hljóðfæri og meiri fjölbreytileika. En það er ekki búið að ákveða hvernig orgel verður keypt og ég vil byrja söfnunina með frjálsum framlögum tónleikagesta og sjá hvernig það gengur. Býst ekki við að ég safni fyrir öllu hljóðfærinu með þessari tónleikaröð, því sjóðurinn er ekki stór fyrir. Þetta verður brekka en skemmtileg brekka því það skapaðist strax góð stemning fyrir málefninu og margir velunnarar og listamenn vilja leggja sitt af mörkum.“

Kór kirkjunnar stendur þétt við bakið á Guðnýju. „Þetta er bara dásamlegur kór, þegar ég bar hugmyndina varfærnislega undir hann, hvort við gætum hugsanlega, mögulega, haft tvenna eða þrenna tónleika fyrir jól þá voru allir til í það. Þarna er hæfileikafólk sem er tilbúið að spila á hljóðfæri og syngja einsöng,“ lýsir hún.

„Ég lagði líka upp með að stemningin á tónleikunum þyrfti ekki að vera alltof hátíðleg, heldur mætti vera heimilisleg, það féll í góðan jarðveg. Við erum að gera þetta fyrir málefnið og því skapast sérstakt andrúmsloft.“

Guðný segir þau Gunnar Kvaran verða á klassískum nótum á laugardaginn, með Bach og fegurð. „Það hefur staðið til að við héldum tónleika saman og ég stakk upp á að hann opnaði með mér þessa tónleikaröð, honum leist vel á það.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.