Lífið

Bono getur ekki hreyft sig

Klæðir sig eins og hasídagyðingur þegar hann fer út að hjóla.
Klæðir sig eins og hasídagyðingur þegar hann fer út að hjóla. Vísir/Getty
The Edge, gítarleikari U2, hefur tjáð sig um hjólreiðaslysið sem söngvarinn Bono lenti í á dögunum.

Spurður hvers vegna engar ljósmyndir hefðu náðst sem tengdust slysinu sagði hann: „Sko, þegar Bono fer að hjóla vill hann klæða sig eins og hasídagyðingur.“ Átti hann væntanlega við að söngvarinn dulbúi sig þannig til að sleppa við ágang fjölmiðla.

Að sögn The Edge getur Bono hvorki hreyft legg né lið. „Mörg bein brotnuðu í olnboga og baki. En hann hefur það sæmilegt,“ sagði gítarleikarinn við Radio.com.

„Hann er í Dublin núna og getur í rauninni ekki hreyft sig næstu tvo mánuði.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×