Innlent

Kýrin Lýsa áfram á toppnum

Mynd úr safni
Afurðahæsta kýr landsins í aprílmánuði, reiknað út frámjólkurlítrum, er Lýsa frá Stakkhamri 2. Hún heldur fyrsta sætinu frá því í mars. Meðalafurðir Lýsu voru tæplega 12 tonn í apríl en ríflega 12 tonn í mars.

Þetta kemur fram á vef Landssambands kúabænda.

Þar segir að af 10 afurðahæstu kúm landsins eru fimm frá sama búinu, Gunnbjarnarholti.

Bændasamtökin hafa tekið saman tölulegar niðurstöður yfir aprílmánuð. Alls komu 603 bú til uppgjörs. Fjöldi árskúa var 22.924.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×