Lífið

Veisla borðspilaáhugamannsins

Sandra Guðrún Guðmundsdóttir skrifar
Svanhildur Eva Stefánsdóttir, eigandi Spilavina, á von á fjölda gesta í dag. Hér tekur hún í spil ásamt Lindu Rós Ragnarsdóttur, meðeiganda sínum, og Andra Þór Sturlusyni, starfsmanni í búðinni.
Svanhildur Eva Stefánsdóttir, eigandi Spilavina, á von á fjölda gesta í dag. Hér tekur hún í spil ásamt Lindu Rós Ragnarsdóttur, meðeiganda sínum, og Andra Þór Sturlusyni, starfsmanni í búðinni. vísir/ernir
Í dag er alþjóðlegi borðspiladagurinn haldinn um allan heim í þriðja sinn. Í tilefni af deginum blása Spilavinir til allsherjar veislu í húsakynnum sínum á Suðurlandsbraut. Þar verður spilað á tveimur hæðum á öllum borðum og starfsfólk verslunarinnar kennir gestum að spila allt milli himins og jarðar. Þá mætir einnig á staðinn kaffibarþjónn frá Reykjavík Roasters og býr til kaffi fyrir gesti.

„Við vorum með þetta í fyrra líka,“ segir Svanhildur Eva Stefánsdóttir, annar eigenda Spilavina. „Þá mættu fleiri hundruð manns á öllum aldri, ömmur, afar, ungt fólk, krakkar og alveg heilu fjölskyldurnar saman.“

Svanhildur segir að að alþjóðlegi borðspiladagurinn hafi orðið til í framhaldi af því að borðspilamenning fer vaknandi í heiminum. Leikarinn Wil Wheaton úr Star Trek og Big Bang Theory er einn þeirra sem áttu þátt í að koma alþjóðlegum borðspiladegi á laggirnar. Hann heldur úti þáttaröð á netinu þar sem hann fær frægt fólk til að koma og kenna spil.

Í fyrra voru haldnir þrjú þúsund viðburðir í áttatíu löndum í öllum heimsálfum. Viðburðirnir fara fram í spilabúðum, kaffihúsum, fyrirtækjum og jafnvel í heimahúsum en hægt er að skrá viðburði á vefsíðu borðspiladagsins tabletopday.com.

Enn sem komið eru þrír viðburðir skráðir hér á landi en fyrir utan Spilavini, heldur Nexus einnig upp á daginn í annað sinn en þar verður einnig boðið upp á spilakennslu. Eins heldur Ísafold, Félag ungs fólks gegn ESB-aðild, upp á daginn með spilakvöldi sem hefst klukkan 20.00 og heldur áfram eins lengi og menn þola.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×