Fótbolti

Jafntefli í Íslendingaslag

Anton Ingi Leifsson skrifar
Elmar í landsleik.
Elmar í landsleik. vísir/getty
Randers og Vestsjælland gerðu 1-1 jafntefli í Íslendingaslag í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Theodór Elmar Bjarnason spilaði allan leikinn fyrir Randers og sömu sögu má segja af Eggerti Gunnþóri Jónssyni hjá Vestsjælland.

Rasmus Festersen kom Vestsjælland yfir eftir fjórtán mínútur, en Mikael Ishak jafnaði metin fyrir Randers eftir 34. mínútna leik.

Randers er í þriðja sæti deildarinnar, en Vestsjælland er í ellefta sæti, sex stigum frá öruggu sæti í deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×