Lífið

Tækifæri til að taka sólarsjálfu

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Hér sést hluti af Kunstschlager-hópnum auk Svíanna sem opna sýningu í gömlu Blómastofunni.
Hér sést hluti af Kunstschlager-hópnum auk Svíanna sem opna sýningu í gömlu Blómastofunni. Vísir/Stefán
Listviðburðurinn Tropicalia: Listabonanza verður opnaður á Eiðistorgi í dag en viðburðurinn er haldinn af listamannarekna galleríinu Kunstschlager sem opnaði nýverið Kunstshlager-stofu í Hafnarhúsi.

Hópurinn valdi staðsetninguna meðal annars vegna skrautlegra pálmatrjáa sem prýða verslunarkjarnann. „Við vorum orðin svolítið óþreyjufull að bíða eftir vorinu og búið að vera svo vont veður að við ákváðum að taka forskot á sæluna og halda upp á það inni,“ segir Helga Páley Friðþjófsdóttir, einn af meðlimum hópsins, og bætir hlæjandi við: „Það er alltaf hlýtt á Eiðistorgi og allavega ekki rok.“

Alls eru þátttakendur í sýningunni tuttugu og þrír og verða ýmiss konar listviðburðir á boðstólum fyrir gesti. Þar má meðal annars nefna myndlist, vídeóverk, tónlist og ljósmyndir.

Sýningin verður sett upp á óhefðbundinn hátt og verkin staðsett víðs vegar um torgið. „Svo verða sólbekkir og skýjasæla, eða kandífloss eins og það er gjarnan kallað,“ segir Helga Páley hress.

„Svo er þetta gott tækifæri til að skella í eina „selfie“ með pálamatrjám og marmara.“ Viðburðurinn hefst klukkan 15.00 og verður opinn fram eftir kvöldi.

Einnig verður sýningin Of What Is Left opnuð klukkan 14.00 í gömlu Blómastofunni á Eiðistorgi en þar verða verk eftir Svíana Christinu Göthesson, Susanne Högdahl Holm, Joel Hurlburt og Ola Nilsson frá Studio 44.


Tengdar fréttir

Kunstschlager á nýjum stað

Listamannarekna galleríið Kunstschlager er í óðaönn að koma sér fyrir í Hafnarhúsi þar sem opnuð verður Kunstschlager stofa. Áður var hópurinn til húsa á Rauðarárstíg þar sem haldinn var fjöldi ólíkra sýninga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×