Erlent

Banaði fjór­tán fjöl­skyldu­með­limum sínum

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
vísir/epa
Óhugnalegur atburður átti sér stað í Mumbai á Indlandi í dag þegar 35 ára karlmaður myrti fjórtán fjölskyldumeðlimi sína áður en hann tók sitt eigið líf. Talið er að maðurinn, Hasnin Warekar, hafi laumað svefnlyfi í mat allra áður en hann skar þau á háls. Þetta kemur fram á BBC.

Systir mannsins lifði árásina af en fólk í nágrenninu heyrði hróp hennar og gerði lögreglunni viðvart. Ekki er vitað hví Warekar framdi voðaverkin.

„Hann notaði stóran hníf. Meðal hinna föllnu eru foreldrar mannsins, systir hans og börn þeirra,“ segir Gajanan Laxman Kabdule talsmaður lögreglunnar í Mumbai í samtali við AFP.

Yngsta fórnarlamb mannsins var þriggja mánaða gömul dóttir hans en faðir hans, 55 ára, var elstur. Þá myrti hann einnig sex börn systur sinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×