Innlent

Smáhundar bitu bréfbera

Samskonar hundur og réðst á bréfberann. Athugið að myndin er úr safni.
Samskonar hundur og réðst á bréfberann. Athugið að myndin er úr safni.
Bréfberi hjá Póstinum tilkynnti lögreglunni á Suðurnesjum í vikunni að tveir hundar hefðu veist að sér og annar þeirra bitið sig. Bréfberinn var að bera út póst í kjallaraíbúð í umdæminu og stóð hurðin opin. Fyrr en varði komu tveir hundar af mexíkósku smáhundakyni út og beit annar hundurinn hann í fótinn svo áverkar hlutust af.

Bréfberinn fór á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þar sem hann var sprautaður vegna bitsins og settur á lyfjakúr. Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja er tilkynnt um mál af þessu tagi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×