Alvaro Odriozola er nýkominn til þýska stórliðsins Bayern München en virðist hafa verið aðeins of kappsamur á æfingu liðsins í dag.
Þýska blaðið Bild greindi frá því að Alvaro Odriozola hafi ökklabrotið Króatann Ivan Perisic á æfingu liðsins í dag.
Ivan Perisic verður frá í að minnsta kosti einn mánuð vegna meiðslanna.
Hansi Flick, sem tók tímabundið við liði Bayern München, staðfesti meiðsli leikmannsins á Twitter-síðu Bayern.
ℹ️ Hansi #Flick: "Ivan's ankle has to be screwed together. It will take around four weeks for the injury to heal, then he'll begin recovery training."
— FC Bayern English (@FCBayernEN) February 4, 2020
https://t.co/qnA5e8KgQW#ComeBackStronger
Meiðslin voru að sjálfsögðu slys því Alvaro Odriozola ætlaði aldrei að meiða liðsfélaga sinn.
„Við héldum fyrst að þetta væri ekki svo slæmt en svo kom brotið í ljós þegar ökklinn var skoðaður betur,“ sagði Hansi Flick.
„Svona hlutir gerast í fótboltanum en auðvitað hefðum við viljað sjá þetta fara öðruvísi,“ sagði Flick.
Bayern fékk Alvaro Odriozola á láni frá Real Madrid en hann hafði aðeins spilað fjóra deildarleiki með Real á leiktíðinni.
January 22: Alvaro Odriozola joins Bayern Munich
— B/R Football (@brfootball) February 4, 2020
February 4: Odriozola fractures Ivan Perisic's ankle in training, reports Bild
pic.twitter.com/94iVTBooy4
Alvaro Odriozola er 24 ára gamall hægri bakvörður sem kom til Real Madrid frá Real Sociedad árið 2018. Hann hefur leikið fjóra landsleiki fyrir Spán og skoraði eitt mark.
Ivan Perisic er 31 árs gamall og er með fjögur mörk og fimm stoðsendingar í fimmtán leikjum með Bayern München í þýsku deildinni á þessu tímabili.
Það eru líka góðar fréttir af leikmannamálum Bayern því Serge Gnabry hefur náð sér að fullu og það styttist í endurkomu Kingsley Coman.
Bayern München er komið aftur í efsta sæti þýsku deildarinnar eftir sex sigurleiki í röð en liðið var í 5. sæti fyrir sex umferðum síðan. Liðið mætir Chelsea í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar og fyrri leikurinn er í London 25. febrúar.