Körfubolti

Haukur Helgi: Ég er að fara til hans Peters í LF Basket

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Haukur Helgi Pálsson á æfingu í kvöld.
Haukur Helgi Pálsson á æfingu í kvöld. Vísir/Daníel
Landsliðsmaðurinn Haukur Helgi Pálsson er búinn að ganga frá sínum málum en hann mun spila með sænska úrvalsdeildarliðinu LF Basket í vetur. Peter Öqvist, fyrrum þjálfari íslenska karlalandsliðsins, tók við liði LF Basket í sumar og hóaði í einn öflugasta leikmann íslenska landsliðsins.

"Ég er að fara til Svíþjóðar og til hans Peters í LF Basket. Ég er að fara að skrifa undir þetta eftir tíu mínútur," sagði Haukur Helgi Pálsson í lok æfingu íslenska landsliðsins í kvöld.  En er hann að fara úr sólinni í frostið í norður Svíþjóð.

"Ég get ekki sagt að það hafi verið mikil sól í Breogan því það rigndi 250 daga á ári en það var aðeins sunnar á hnettinum," sagði Haukur brosandi. Hann fann fyrir miklum áhuga frá Peter Öqvist.

"Peter hafði samband við mig strax eftir tímabilið eins og hann hefur gert undanfarin ár og hann spurði mig hvernig mín mál yrði. Ég held að þetta verði bara spennandi. Þetta er meiri körfuboltabær heldur en eitthvað annað, þeir eru með nýja íþróttahöll og vilja gera stóra hluti sem er spennandi," sagði Haukur en hvaða stöðu spilar hann úti?

"Ætli ég verði ekki að flakka á milli þess að vera þristur eða fjarki. Ég er meira í öllum stöðum en einhverri sérstakri. Það var hugsunin hjá mér að fara þarna út til Svíþjóðar og fá að spila nóg til þess að þroskast aðeins og finna út hvernig leikmaður ég er. Þetta verður bara gaman," sagði Haukur Helgi en fyrst er að standa sig með íslenska landsliðinu.

"Ég hef fulla trú á þessu verkefni með landsliðinu eins og við allir. Ég ætla að klára þetta með landsliðinu áður en ég fer að hugsa eitthvað nánar um komandi tímabil. Fyrst að samningurinn er kominn þá er ég óhultur eins og er fyrir tryggingarmálum," sagði Haukur léttur að lokum.

Jón Arnór Stefánsson er samningslaus og getur ekki verið með íslenska landsliðinu í undankeppni EM vegna óvissu með tryggingar og hættu á að hann meiðast í leikjunum og missi af mögulegum samningi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×