Tónlist

Samkoma: Tónleikar með Krumma

Tinni Sveinsson skrifar
Krummi Björgvinsson.
Krummi Björgvinsson. Alda

Klukkan ellefu heldur tónlistarmaðurinn Krummi Björgvinsson tónleika hér á Vísi.

Tónleikaröðin nefnist Samkoma og verða tónleikarnir allir í beinni útsendingu hér á Vísi klukkan ellefu á morgnana. Það þýðir að tónlistarmennirnir flytja tónlist sína á afslappaðan máta yfir kaffibollanum.

Hægt er að horfa á beinu útsendinguna hér fyrir neðan en einnig á Facebook-síðu Vísis og á sjónvarpsstöðinni Stöð 2 Vísir á kerfum Vodafone og Símans.

Klippa: Samkoma - Krummi Björgvinsson

Vísir hefur fengið leikstjórann Ágúst Bent til liðs við sig til að halda utan um tónleikana og er framleiðslan í höndum Skjáskots. 

Krummi hefur verið áberandi í íslensku tónlistarlífi í tvo áratugi. Hann hefur farið fyrir fjölda þekktra hljómsveita á borð við Mínus og Esju en hefur síðustu ár samið og flutt tónlist undir eigin nafni. Með Krumma koma fram Bjarni Sigurðsson og Gaukur Davíðsson.

Ellen Kristjáns hélt afar vel heppnaða tónleika á miðvikudag ásamt Þorsteini Einarssyni og Gauki Davíðssyni. Þá kom Teitur Magnússon í á fimmtudag og Sturla Atlas á föstudag og fluttu þeir lög sín á töfrandi máta. Hægt er að horfa á tónleika þeirra í greinunum sem eru tengdar hér fyrir neðan.

Í tónleikaröðinni Samkoma mæta þekktir íslenskir tónlistarmenn og flytja tónlist sína á afslappaðan máta yfir morgunbollanum. Tónleikarnir eru unnir í samstarfi við Mennta- og menningarmálaráðuneytið og Kjarvalsstofu.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.