Skoðun

Þjóðarsátt?

Hilda Jana Gísladóttir skrifar

Ísland er að verða eitt mesta borgríki veraldar. Um 60% þjóðarinnar búa á höfuðborgarsvæðinu á meðan til að mynda 18% frönsku þjóðarinnar búa í höfuðborginni París og rúm 13% bresku þjóðarinnar búa í London. Þar að auki búa á áhrifasvæði höfuðborgar Íslands, milli Hvítánna tveggja á suðvesturhorninu, um 84% landsmanna. Á meðan að áratugagamlir innviðir á landsbyggðunum ógna ekki aðeins vaxtarmöguleikum svæða, heldur öryggi íbúa, þá hefur íslensk byggðastefna beðið skipbrot.

Við þurfum að hafa metnaðarfulla og skýra framtíðarsýn á það hvernig við viljum byggja landið okkar. Sú sýn þarf að grundvallast á þjóðarsátt um að við viljum bæði sterka höfuðborg og öflugar landsbyggðir. Taka þarf ákvarðanir um hvaða þjónusta á að vera fyrir hendi á hverjum stað og tryggja að allir landsmenn hafi aðgang að sjálfsagðri grunnþjónustu sem ekki þurfi að sækja um langa vegu.

Í drefibýlu landi eigum við líka að vera í forystu í öllu fjarsamstarfi. Með því að tryggja og jafna lífsskilyrði allra íbúa getum við haldið landinu í byggð. Með því að byggja upp góða þjónustu sem víðast um landið, tryggja búsetu í öllum landshlutum, höldum við áfram að gera Ísland að spennandi kosti fyrir ferðamenn.

Nú er svo komið að aðeins um 16% landsmanna búa utan áhrifasvæðis höfuðborgarinnar og yfir helmingur þeirra býr á Norðurlandi eystra. Á Akureyri búa 5% landsmanna en Akureyri er þó fjölmennasti byggðakjarninn utan áhrifasvæðis höfuðborgarinnar. Í sóknaráætlun landshlutans er lögð áhersla á að Akureyri verði skilgreind sem borgarsvæði. Ástæðan er einföld: Fólk á svæðinu vill að ýmis grunn- og stoðþjónusta sé tryggð í nærumhverfi þess og öflugur þjónustukjarni sé landfræðilega nær. Höfuðborgin er einfaldlega landfræðilega of langt í burtu til þess að það geti talist ásættanlegt að íbúar á Norðurlandi eystra sæki þangað alla þjónustu.

Lengi hefur verið rætt um að styrkja höfuðstaði landsins í hverjum fjórðungi með gerð höfuðstaðastefnu og fjármagnaðari aðgerðaráætlun fyrir hvern þeirra. Það var því ánægjulegt að sjá að samkvæmt stefnumótandi byggðaáætlun ríkisstjórnarinnar á að gera höfuðborgarstefnu fyrir Reykjavíkurborg. Ég sakna þess þó að sjá ekki slíka stefnumótun fyrir aðra höfuðstaði landsins. Ég bind þó vonir við að slíkt verði gert innan skamms. Akureyrarbær hefur óskað eftir því að taka þátt í verkefni um vaxtarsvæði í samstarfi við Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra. Ég vona að ekki líði á löngu þar til ráðherra svarar því erindi. Ef Akureyri fær byr undir báða vængi til þess að verða enn öflugri þjónustumiðstöð, þá mun áhrifa þess gæta langt út fyrir sveitarfélagamörkin og næði til meirihluta þeirra sem búa utan áhrifasvæðis höfuðborgarinnar. Það er því til mikils að vinna.

Höfundur er bæjarfulltrúi á Akureyri (S) og formaður stjórnar Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×