Erlent

Modi fram­lengir út­göngu­bann

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Narendra Modi forsætisráðherra Indlands ávarpaði þjóð sína í morgun.
Narendra Modi forsætisráðherra Indlands ávarpaði þjóð sína í morgun. AP

Forsætisráðherra Indlands, Narendra Modi, hefur tilkynnt indversku þjóðinni að útgöngubannið, sem í gildi er, verði framlengt til 3. maí.

Staðfest kórónuveirusmit eru nú yfir tíu þúsund í landinu þrátt fyrir íþyngjandi aðgerðir síðustu þriggja vikna.

Í sjónvarpsávarpi sagði Modi að aðalmarkmiðið væri, sem stendur, að koma í veg fyrir að veiran breiddist út til landsvæða þar sem smit hefur ekki komið upp.

„Hver einasti Indverji verður að sæta útgöngubanni til 3. maí. Ég fer fram á það við alla Indverja að við komum í veg fyrir að kórónuveiran breiðist út til annarra svæða,“ sagði Modi í ávarpi sínu.


Tengdar fréttir

Óðagot á Indlandi vegna útgöngubannsins

Lögreglumenn á Indlandi hafa barið fólk sem ætlaði að kaupa mat eftir að útgöngubanni var komið á til að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar í gærkvöldi. Skelfing greip um sig eftir ræðu Narendra Modi, forsætisráðherra, í gær þegar fólk óttaðist að það yrði matarlaust.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×