Enski boltinn

Pep niðurlægði Mourinho fyrir framan 400 milljónir þegar þeir mættust í fyrsta sinn á Spáni

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Sergio Ramos fékk rautt spjald í leiknum.
Sergio Ramos fékk rautt spjald í leiknum. vísir/getty
José Mourinho og Pep Guardiola eru engir vinir og langt frá því. Manchester-stjórarnir mætast í fyrsta sinn í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn þegar United og City eigast við í risaslag í ensku úrvalsdeildinni.

Pep og Mourinho elduðu grátt silfur saman þegar þeir stýrðu spænsku risunum Barcelona og Real Madrid. Óvinátta þeirra og liðanna gekk svo langt að í leik um stórbikarinn á Spáni potaði Mourinho í augað á Tito Villanova heitnum, þáverandi aðstoðarþjálfara.

Guardiola hafði fín tök á Real Madrid-liði Mourinho en hann vann fimm af ellefu viðureignum sínum gegn Real og tapaði aðeins tvisvar. Þegar Pep og Mourinho mættust fyrst í nóvember 2010 varð úr ein allsherjar niðurlæging fyrir Portúgalann sem var að snúa aftur Nývang, sinn gamla heimavöll.

José Mourinho vann Pep Guardiola aðeins tvisvar sinnum á Spáni.vísir/getty
Stærsta tapið á ferlinum

Barcelona gerði lítið úr Real Madrid með 5-0 sigri en það voru ekki bara úrslitin sem heimsbyggðin tók eftir heldur frammistaða Barcelona sem var mögnuð. Liðið átti ríflega 600 sendingar á milli manna og hreinlega niðurlægði Real Madrid fyrir framan 400 milljónir sjónvarpsáhorfenda.

„Ég held að þetta hafi verið ein besta frammistaða sem ég hef séð hjá einu fótboltaliði í tugi ára. Maður hefur sjaldan eða aldrei séð aðra eins fótboltaveislu. Þetta var einn heilsteyptasti fótboltaleikur sem ég hef séð hjá einu liði í háa herrans tíð,“ sagði Heimi Guðjónsson, þjálfari FH, í kvöldfréttum Stöðvar 2 um leikinn. Hann var hreinlega dolfallin.

Orðið niðurlæging var þó ekki eitthvað sem Mourinho vildi nota um þetta tap. „Niðurlæging? Nei, alls ekki. Þetta er versti ósigurinn á mínum ferli. Ég hef aldrei áður tapað 5-0, en þetta er tap sem er auðvelt að melta,“ sagði Mourinho en Pep var glaður.

„Við erum stoltir því heimurinn hefur séð hvernig við viljum spila. Úrslitin eru afleiðing þess sem gerðist í leiknum.“

Svona fór þegar þessir miklu óvinir mættust í fyrsta skipti á Spáni. City-liðið hefur heillað marga með spilamennsku sinni í fyrstu leikjum ensku úrvalsdeildarinnar og nú vona stuðningsmenn liðsins að það fari eins í fyrsta leik Pep og Guardiola á Englandi eins og fór á Spáni.

Hér að neðan má sjá kvöldfrétt Stöðvar 2 eftir leik Barcelona og Real Madrid í nóvember 2010.


Tengdar fréttir

Dýrasti knattspyrnuleikur sögunnar

Nágrannaslagur Man. Utd og Man. City um helgina verður sögulegur að því leyti að liðin hafa aldrei mætt til leiks með eins dýra leikmenn. Það sem meira er þá mun þessi leikur slá öll met yfir dýr knattspyrnulið. Þetta verður dýrasti leikur sögunnar.

Claudio Bravo, ertu klár?

Sænski framherjinn Zlatan Ibrahimovic hjá Manchester United er klár í slaginn fyrir Manchester-slaginn á Old Trafford í hádeginu á laugardaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×