Erlent

Harmar á­kvörðun Trump

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Eþíópíumaðurinn Tedros Adhanom Ghebreyesus tók við embætti forstjóra Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar árið 2018. 
Eþíópíumaðurinn Tedros Adhanom Ghebreyesus tók við embætti forstjóra Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar árið 2018.  EPA

Dr. Tedros Adhanom, forstjóri Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO), harmar ákvörðun Bandaríkjaforseta um að hætta, að minnsta kosti tímabundið, að styrkja stofnunina.

Þetta kom fram á blaðamannafundi forstjórans í gær. Varaði hann þar við sundrungu á viðsjárverðum tímum.

Adhanom sagði kórónuveiruna ekki fara í manngreiningarálit og að hún væri sameiginlegur og hættulegur óvinur. Kórónuveiran myndi nýta sér sprungurnar sem myndast í óeiningunni á tímum þar sem þjóðir heims og mannúðarstofnanir þyrftu að snúa bökum saman.

Adhanom sagði að Bandaríkin hefðu reynst stofnuninni vel. Bandaríkin hefðu verið henni örlát vinaþjóð í lengri tíma.

Hann sagði að nú myndi stofnunin rýna í fjármálin og leita til annarra samstarfsþjóða til að brúa bilið því mikilvægast af öllu væri að stofnunin gæti unnið áfram án truflana.


Tengdar fréttir

Trump segist hafa stöðvað fjárveitingar til WHO

Bandaríkin ætla að hætta að veita Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni (WHO) fé vegna þess hvernig stofnunin tók á kórónuveiruheimsfaraldrinum. Donald Trump Bandaríkjaforseti fullyrti að hann hefði skipað fyrir um þetta á blaðamannafundi í Hvíta húsinu í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×