Skagamaðurinn Arnór Sigurðsson var á skotskónum í rússnesku deildinni í dag þegar hann skoraði fyrir CSKA Moskvu í 3-2 tapi á móti Rostov á útivelli
Þetta var barátta á milli liða sem voru jöfn að stigum í fjórða og fimmta sæti deildarinnar og tapið því sárt fyrir CSKA liðið sem mátti þola mikið mótlæti í þessum leik.
CSKA Moskva spilaði með níu menn síðustu 40 mínútur leiksins og var manni færri frá tuttugustu mínútu. Það var því sannarlega á brattann að sækja í leiknum. CSKA klikkaði líka á vítaspyrnu.
Arnór Sigurðsson og Hörður Björgvin Magnússon voru báðir í byrjunarliði CSKA og spiluðu allar 90 mínúturnar í leiknum. Arnór var fremstur en Hörður Björgvin í þriggja manna vörn.
Arnór fékk gult spjald í uppbótartíma og var þá sjöundi leikmaður liðsins til að fá spjald, gult eða rautt, í þessum leik.
Arnór kom CSKA Moskvu í 1-0 á 25. mínútu eða fjórum mínútur eftir að liðið missti Ilzat Akhmetov af velli með rautt spjald. Akhmetov gaf líka víti en Rostov menn klikkuðu á því.
Rostov jafnaði aftur á móti metin á 31. mínútu og komst síðan yfir í 2-1 úr annarri vítaspyrnu á 53. mínútu. Vadim Karpov fékk rautt spjald þegar hann gaf hana og á augabragði þá var CSKA bæði tveimur mönnum færra og marki undir.
Rostov bætti síðan við marki á 63. mínútu og var þar með komið í 3-1. CSKA Moskva gafst ekki upp og náði að minnka muninn tveimur mönnum færri en markið var sjálfsmark leikmanns Rostov á 77. mínútu.
CSKA Moskva fékk kjörið tækifæri til að jafna metin en Fedor Chalov klúðraði þá vítaspyrnu á 86. mínútu. Hörður Björgvin Magnússon reyndi að setja frákastið í markið en skaut yfir.
Þetta var fyrsta mark Arnórs í rússnesku deildinni síðan 29. september þegar hann skoraði 3-0 sigri á Ural. Arnór hefur alls skorað 3 mörk í 15 leikjum á tímabilinu en skoraði 5 mörk í 21 leik á tímabilinu í fyrra.
Arnór með sitt fyrsta mark síðan í september
Óskar Ófeigur Jónsson skrifar

Mest lesið



Sniðganga var rædd innan HSÍ
Handbolti



Besta-spáin 2025: Stoppa stutt við eftir langa eyðimerkurgöngu
Íslenski boltinn

„Þið eruð ekki nógu duglegar að tuða í dómurunum“
Íslenski boltinn

Brady óskaði Willum, Alfonsi og félögum til hamingju
Enski boltinn

