Valur með átta stiga forskot á toppnum | Snæfell vann í Kópavogi Sindri Sverrisson skrifar 22. febrúar 2020 18:03 Helena Sverrisdóttir og stöllur í Val eru á góðri leið með að verða deildarmeistarar líkt og í fyrra. Vísir/Bára
Íslandsmeistarar Vals unnu risasigur á botnliði Grindavíkur, 118-55, í Dominos-deild kvenna í körfubolta í dag. Snæfell vann 99-71 gegn Breiðabliki í Kópavogi. Baráttan á milli Breiðabliks og Grindavíkur um að forðast fall heldur því áfram. Breiðablik er með 6 stig en Grindavík 4 þegar sex umferðir eru eftir, en liðin mætast í Grindavík í lokaumferðinni. Valskonur eru nú komnar með átta stiga forskot á toppi deildarinnar og aðeins tímaspursmál hvenær þær tryggja sér deildarmeistaratitilinn annað árið í röð. Dagbjört Dögg Karlsdóttir var þeirra stigahæst í dag með 24 stig, 7 fráköst og 5 stoðsendingar, og Helena Sverrisdóttir skoraði 20 stig, tók 8 fráköst og gaf 9 stoðsendingar, en alls voru sex leikmenn Vals með að minnsta kosti 13 stig hver í leiknum. Tania Pierre-Marie skoraði 18 stig fyrir Grindavík. Snæfell var tveimur stigum undir, 24-22, eftir fyrsta leikhluta gegn Breiðabliki en náði forystunni fyrir hálfleik, 43-38. Munurinn var ekki mikill á liðunum fyrr en á lokamínútunum þegar gestirnir úr Stykkishólmi stungu endanlega af. Amarah Coleman skoraði 30 stig fyrir Snæfell og Emese Vida skoraði 14 auk þess að taka 13 fráköst. Hjá Blikum var Danni Williams langstigahæst með 38 stig og hún tók 9 fráköst.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Körfubolti Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Unga hjólreiðakonan látin Sport Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Efast um dugnað og hugarfar Rashford Enski boltinn Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Fleiri fréttir Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sjá meira