„Það var tekin ákvörðun af skólanum að hafa alla kennslu í gegnum fjarskiptabúnað fram að vorfríi og líka í nokkrar vikur eftir vorfrí. Það er ekki vitað hvort það verði út önnina jafnvel. Það er í skoðun, “ segir Melkorka.
Sú ákvörðun hafi auðveldað hennar ákvörðun að drífa sig heim, henni finnist öruggara að vera á Íslandi og treysta á heilbrigðiskerfið hér en úti. Þá geti hún eytt tímanum með fjölskyldunni sem er einmitt að ljúka tveggja vikna sóttkví eftir Ítalíuferð.
Hreyfitímar á netinu
Melkorka segir leiklistarkennslu í gegnum fjarskiptabúnað vissulega óvenjulega. Hún hafi farið í tvo akademíska tíma í gegnum kerfið sem hafi gengið mjög vel en hún muni einnig fara í raddþjálfun, hreyfitíma og leiklistarþjálfun. Samskiptakerfið sem er notað heitir Zoom.„Við höfum hlegið að því hvernig þetta verði. Leiklist er unnin út frá snertingu og samskiptum, að vinna í pörum og svo framvegis. Þannig að þetta verður áhugavert. Sumir kennararnir verða líka með börn heima í stofu að kenna okkur og svona. En kerfið virkar þannig að það er hægt að rétta upp hönd, láta vita ef maður fer á klósettið og sá sem er að tala er alltaf með stærsta plássið á skjánum. En þetta er í fyrsta skipti sem skólinn kennir leiklist í gegnum fjarskiptabúnað. Deildarstjórinn er jákvæður og segir að mögulega komi bara eitthvað frábært og nýtt út úr þessu.“
Melkorka segir marga nemendur hafa ákveðið að fara heim til sín við þessa ákvörðun um fjarkennslu, bæði bandarískir nemendur og alþjóðlegir. Hún geri ekki endilega ráð fyrir að snúa aftur til Bandaríkjanna á þessari önn en það verði hreinlega að koma í ljós. Starfsfólk skólans geri allt til að liðka fyrir og aðstoða nemendur svo hún hefur ekki miklar áhyggjur af því að komast ekki aftur inn í landið vegna farbannsins. Hún segir mikla óvissu fylgja þessu ástandi – í borginni allri.
„Maður finnur aðeins fyrir áhrifunum. Það er minna af fólki úti á götu, rólegra yfir öllu og á sunnudaginn fór ég í Whole Food sem er yfirleitt full af fólki og vörum en núna eru tómar hillur. Það er greinilegt að fólk er að undirbúa að leggjast í dvala.“