Innlent

Fyrstu frumvörpin um aðgerðir lögð fram á morgun

Heimir Már Pétursson skrifar
Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra.
Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra. Vísir/Vilhelm

Boðað hefur verið til aukafundar á Alþingi á morgun þar sem líklega verða lögð fram frumvörp um hluta þeirra aðgerða sem stjórnvöld ætla að grípa til vegna stöðunnar. Stjórnarandstaðan ítrekar mikilvægi samstarfs við hana og aðila vinnumarkaðarins.

Viðbrögð stjórnvalda og áætlanir vegna ástandsins í samfélaginu voru til umræðu bæði í fyrirspurnartíma og eftir munnlega skýrslu forsætisráðherra um þau mál á Alþingi í dag. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra var ánægður með fund formanna allra flokka á þinginu í dag þar sem aðgerðir og nauðsynleg lagasetning vegna stöðunnar var rædd.

„Við erum að vinna að því að hraða eins og mest má verða einstaka ákvörðunum sem áður stóð til að safna saman í einn bandorm með mörgum málum. Sumar af þeim ákvörðunum geta komið hraðar inn og við ræddum það við stjórnarandstöðuna að halda þingfund á morgun og reyna að koma þeim í gegnum þingið sem fyrst. Því var ágætlega tekið sem er mjög gott,“ sagði Bjarni.

Í umræðum buðu fulltrúar stjórnarandstöðunnar allir upp á samstarf við ríkisstjórnina og hvöttu hana einnig til að vinna málin með samtökum launafólks og fyrirtækja.

„Við megum ekki bíða eftir því að veruleikinn teiknist einhvern veginn upp. Heldur þurfum að sýna frumkvæði, áræðni, æðruleysi og kjark,“ sagði Logi Einarsson formaður Samfylkingarinnar.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar varaði við öllum hræðsluáróðri og hvatti til þess að lýðræðisleg tæki væru nýtt í samvinnu við alla ákvarðanatöku.

„Gerum þetta saman. Förum yfir þetta saman, veitum skýr svör og ég vil hvetja ríkisstjórnina til dáða hvað það varðar. Ég vil líka hrósa henni fyrir að hafa svarað Bandaríkjamönnum almennilega. Hæstvirtur utanríkisráðherra, vel gert,“ sagði Þorgerður Katrín.

Ríkissjóður stendur vel eftir miklar niðurgreiðslur skulda á undanförnum árum. En minni tekjur vegna ástandsins og aukin útgjöld með aðgerðum stjórnvalda þýða töluverðan halla á fjárlögum strax á þessu ári og því næsta.

„Og við þurfum einfaldlega að sætta okkur við að þannig förum við best í gegnum þessa lægð. Ef við ætluðum ekki að hafa halla myndum við þurfa að fara í mjög sársaukafullar aðgerðir og það ætlum við ekki að gera,“ sagði Bjarni og ítrekaði að hér væri um tímabundið ástand að ræða.


Tengdar fréttir

Enn ekkert íþróttabann á Englandi

Ríkisstjórnin á Englandi er enn að íhuga hvort að fresta eigi öllum íþróttaviðburðum vegna kórónuveirunnar en enn hefur ekkert bann verið gefið út.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×