Erlent

Seinagangur á Bretlandi talinn hafa kostað mannslíf

Kjartan Kjartansson skrifar
Ekki voru gefin út tilmæli um að fólk héldi sig heima vegna kórónuveirufaraldursins á Bretlandi fyrr en 23. mars, nokkru eftir að önnur ríki höfðu þegar gripið til slíkra aðgerða.
Ekki voru gefin út tilmæli um að fólk héldi sig heima vegna kórónuveirufaraldursins á Bretlandi fyrr en 23. mars, nokkru eftir að önnur ríki höfðu þegar gripið til slíkra aðgerða. Vísir/EPA

Vísindaráðgjafi bresku ríkisstjórnarinnar segist óska þess að gripið hefði verið til aðgerða gegn kórónuveirufaraldrinum fyrr vegna þess að tafirnar hafi kostað mannslíf. Hann kennir lélegum gögnum við upphaf faraldursins um þær ákvarðanir sem voru teknar.

Bresk stjórnvöld gripu töluvert seinna til aðgerða eins og að gefa út fyrirmæli um að fólk héldi sig heima en önnur Evrópuríki. Það var ekki gert fyrr en 23. mars en á þeim tíma er áætlað að um 100.000 manns hafi smitast á dag. John Edmunds, vísindaráðgjafi ríkisstjórnarinnar, segist nú iðrast þess.

„Ég vildi að við hefðum sett útgöngubann á fyrr. Ég held að þetta hafi kostað mörg mannslíf, því miður,“ sagði Edmunds í viðtali við breska ríkisútvarpið BBC.

Engu að síður heldur hann því fram að erfitt hefði verið fyrir ríkisstjórnina að grípa til aðgerða fyrr í ljósi gagnanna sem hún hafði í höndunum þá. Takmörkuð skimun átti sér þá stað.

Næstflest dauðsföll í kórónuveirufaraldrinum í heiminum hafa orðið á Bretlandi, rúmlega 40.500 samkvæmt tölum Johns Hopkins-háskóla í Bandaríkjunum.

Matt Hancock, heilbrigðisráðherra, brást við ummælum Edmunds, með þeim orðum að ríkisstjórnin hefði brugðist rétt við faraldrinum miðað við þær upplýsingar sem hún hafði á sínum tíma.

Boris Johnson, forsætisráðherra, hyggst tilkynna um frekari tilslakanir á takmörkunum sem taka gildi mánudaginn 15. júní á næstu dögum. Þá er búist við að verslanir sem voru ekki skilgreindar sem nauðsynlega fái grænt ljós á að opna og tilbeiðslustaðir fá að bjóða fólki upp á að fólk biðji í einrúmi.

Í þessari viku verða sumir skólar opnaðir og tilmæli um hversu margt fólk frá sama heimili getur hitt verða rýmkuð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×