Innlent

Skólp rataði upp á yfir­borðið eftir að brunnur stíflaðist vegna blaut­klúta á Akur­eyri

Atli Ísleifsson skrifar
Brunninn er að finna nærri Giljaskóla á Akureyri.
Brunninn er að finna nærri Giljaskóla á Akureyri. Aðsend

Mikinn óþef lagði yfir svæði í grennd við Giljaskóla á Akureyri eftir að brunnur stíflaðist með þeim afleiðingum að skólp flæddi upp á yfirborðið.

Helgi Jóhannesson, forstjóri Norðurorku, segir margt benda til að skýringuna sé að finna í að einhverjir hafi verið að koma rakettuspýtum og greinum ofan í brunnlokið. Blautklútar í fráveitunni hafi svo safnast upp á staðnum með þeim afleiðingum að skólp flæddi upp á yfirborðið.

Á myndum má sjá að skólpið flæddi yfir nokkuð stórt svæði nærri skólanum.

Helgi segir málið góða áminningu um skaðsemi blautklúta í fráveitu og að mikilvægt sé að líta ekki á salerni sem ruslakistu. Mikil vinna og kostnaður geti falist í að hreinsa dælur og sönuleiðis auka klútarnir líkurnar á bilunum í öllum búnaði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×