Rakitic kom Börsungum aftur á toppinn

Anton Ingi Leifsson skrifar
Rakitic skoraði sigurmark Börsunga.
Rakitic skoraði sigurmark Börsunga. Xavi/Getty Images

Króatinn Ivan Rakitić sá til þess að Barcelona endurheimti toppsæti spænsku úrvalsdeildarinnar í kvöld.

Athletic Bilbao var í heimsókn á Nou Camp og þurftu heimamenn nauðsynlega á sigri að halda. staðan hins vegar markalaus í hálfleik þó svo að Börsungar væru mikið betri aðilinn. Gestirnir áttu til að mynda ekki skot á markið í leik kvöldsins.

Það var svo á 71. mínútu leiksins sem Ivan Rakitić skoraði eina mark leiksins eftir sendingu frá Lionel Messi, hverjum öðrum. Lokatölur 1-0 og Barcelona komið á topp deildarinnar á ný.

Barca er með 68 stig á meðan Real Madrid er með 65 og á leik til góða.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira