Í hönnunarspjallþætti dagsins verður farið yfir sýningar og viðburði dagsins áður og það sem framundan er á HönnunarMars hátíðinni með vel völdum einstaklingum, sem og lifandi samtal um hönnun í ljósi hamfarahlýnunar, hraðra tækniframfara, samfélagsbreytinga og nú síðast covid 19.
Garðar Eyjólfsson ræðir við Erling Jóhannesson, gullsmið og forseti BÍL og Rósu Hrund Kristjánsdóttur, sköpunarstjóra hjá Hvíta Húsinu. Einnig talar Hlín Helga Guðlaugsdóttir við Helga Pjetur, frumkvöðul og hönnuð um smitrakningarappið, eitt besta dæmi um aðkomu og mikilvægi hönnuða í þverfaglegu samstarfi.
Þátturinn er sýndur í beinni útsendingu klukkan þrjú og verður þá hægt að horfa á hann í spilaranum hér fyrir neðan.
Hönnunarspjallið er liður í dagskrá Studio 2020 á HönnunarMars, sem er tilraunavettvangur á HönnunarMars 2020, og ætlað er að miðla efni hátíðarinnar á ýmsu formi á meðan á henni stendur og í kjölfarið. Markmiðið er að veita innsýn í hugskot hönnuða, viðfangsefni og hugmyndir um framtíðina. Auk þess að hvetja til breiðs samtals um hönnun og arkitektúr. Alls verða þrír þættir og má sjá þátt gærdagsins HÉR. Allir þættirnir verða sýndir hér á Vísi.

Umsjón með hönnunarspjallinu hafa Hlín Helga Guðlaugsdóttir stjórnandi DesignTalks og Garðar Eyjólfsson fagstjóri meistaranáms í hönnun við LHÍ. Upptaka er í höndum Einars Egilssonar og útlit hefur Steinn Einar Jónsson hannað. Þriðji og síðasti þátturinn kemur á Vísi á morgun, laugardaginn 27. júní, klukkan 15:00.

HönnunarMars 2020 átti að fara fram í lok marsmánaðar eins og undanfarin ellefu ár, en vegna Covid-19 faraldursins var hátíðinni frestað til 24.-28. júní. Á hátíðinni leiðir framsækin hönnun og nýjungar saman sýnendur og gesti.
HönnunarMars fer fram með breyttu sniði í ár en tugir hönnuða taka þátt og allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Nánar verður fjallað um hátíðina hér á Vísi næstu daga. Einhverjir viðburðir eru opnir lengur en þessa fimm daga og nánar má lesa um dagskránna á vef HönnunarMars.