Dularfullur fíladauði í Botsvana Atli Ísleifsson skrifar 2. júlí 2020 07:44 Hin dularfullu dauðsföll hafa átt sér stað frá í byrjun maí, en þá fannst hópur dauðra fíla við ósa Okavango-fljótsins. Mynd er úr safni. Getty
Rúmlega 350 fílar hafa drepist í norðurhluta Afríkuríkisins Botsvana síðustu mánuðina. Enn hefur ekki komið fram opinber skýring á dauða fílanna og hafa tafir orðið á sýnatöku fulltrúa yfirvalda. Hin dularfullu dauðsföll hafa átt sér stað frá í byrjun maí, en þá fannst hópur dauðra fíla við ósa Okavango-fljótsins. Guardian hefur eftir ónafngreindum heimildarmönnum að hræ um 70 prósent fílanna hafi fundist við vatnsból. Óljóst hvað veldur Niall McCann, yfirmaður hjá bresku velgjörðarsamtökunum National Park Rescue, segir í samtali við Guardian að fjöldadauði fílanna sé af slíkri stærðargráðu að annað eins hafi ekki sést í langan tíma. Yfirvöld í Botsvana hafa enn ekki ráðist í sýnatöku svo að óljóst er hvað það er sem veldur dauða dýranna. Mögulega eitthvað sem ræðst á taugakerfið McCann segir í samtali við BBC að hann telji ekki að þeir hafi drepist vegna miltisbrands, sem leiddi til dauða um hundrað fíla í Botsvana á síðasta ári. Sömuleiðis sé ólíklegt að eitrað hafi verið fyrir þeim þar sem svo virðist sem að dýrin sem hafi gætt sér á hræjum fílanna hafi ekki veikst eða drepist. Sú staðreynd að mörg dýranna hafi fallið fram fyrir sig og drepist, auk þess að sést hafi til fílanna ganga í hringi áður en þau drápust, bendi til að um sé að ræða eitthvað sem ráðist á taugakerfi fílanna, að mati McCann.
Dýr Botsvana Mest lesið Fimm grímuklæddir brutu upp útidyrahurð Innlent Albert ákærður fyrir kynferðisbrot Innlent Enn slasast tugir í ókyrrð Erlent „Enn fólk að birtast sem hafði ekki hugmynd um þetta“ Innlent Guðmundur Elís í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Innlent Einn látinn og þúsundir án vatns og rafmagns Erlent Nauðgaði andlega fatlaðri konu ítrekað og lét son hennar fylgjast með Innlent Klámáhorf barna enn að dragast saman Innlent Mögulega komnir úr landi en ekki ástæða til að lýsa eftir þeim Innlent Orbán hyggst óvænt heimsækja Úkraínu Erlent Fleiri fréttir Einn látinn og þúsundir án vatns og rafmagns Enn slasast tugir í ókyrrð Orbán hyggst óvænt heimsækja Úkraínu Í höndum Macron að koma í veg fyrir stórsigur Le Pen Hæstiréttur segir Trump njóta friðhelgi að hluta Einn helsti rithöfundur Albaníu er allur Strangrúaðir mótmæltu herskyldu Varað við fellibylnum Beryl sem er á leið yfir Karíbahafið Kínversk geimflaug hrapaði til jarðar Flestir á því að Biden valdi ekki starfinu Sögulegur dagur fyrir frönsku þjóðina að baki „Ástæða til að hafa áhyggjur“ Franska þjóðfylkingin leiðir samkvæmt útgönguspám Vöknuðu á floti og stigu út með drulluna upp að hnjám „Fólk er einfaldlega hrætt“ Leitin að Slater blásin af Frakkar ganga að kjörborðinu Útlitið svart hjá Macron fyrir kosningar á morgun Bandarískum kjósendum líst illa á stöðuna í forsetaslagnum Ungur maður tekinn af lífi fyrir að hlusta á K-pop í Norður-Kóreu Efna til allsherjarleitar að Slater Mossack og Fonseca heitinn sýknaðir Segir Biden „algjörlega vanhæfan“ „Ég veit að ég er ekki ungur maður“ „Fíaskó næturinnar“ gæti kallað á nýjan frambjóðanda Ævilangt fangelsi fyrir morðið og nauðganirnar Biden augljóslega þyngdur af ellibelgnum Sakfelldur fyrir að myrða Emilie Meng Þakið á flugvelli í Nýju Delí hrundi vegna mikillar rigningar Biden hikandi og hás í fyrri kappræðum kosninganna Sjá meira