Viðskipti innlent

Krísufundur hjá flugfreyjum

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Flugfreyjur funda nú í höfuðstöðvum FFÍ í Kópavogi.
Flugfreyjur funda nú í höfuðstöðvum FFÍ í Kópavogi. Vísir/friðrik

Félagsmenn Flugfreyjufélags Íslands sitja nú á rökstólum í höfuðstöðvum félagsins við Hlíðasmára í Kópavogi. Þungt hljóð er í félagsmönnum eftir að Icelandair tilkynnti um uppsögn allra flugfreyja og þjóna félagsins, þess hefur t.a.m. verið óskað að sett verði upp áfallamiðstöð þangað sem félagsmenn geti sótt stuðning.

Engin formleg viðbrögð hafa fengist frá Flugfreyjufélaginu síðan Icelandair tilkynnti um ákvörðun sína klukkan 13:30. Um 900 flugfreyjum og flugþjónum var sagt upp í byrjun maí en í dag sagði Icelandair upp þeim 38 flugfreyjum og flugþjónum sem ekki voru fyrir á uppsögn.

Áfram flugfreyjur hjá félaginu

Icelandair segist nú ætla að leita til annars íslensks stéttarfélags um framtíðarkjör „öryggis- og þjónustuliða“ hjá félaginu. Með þessu segist flugfélagið þó ekki vera að leggja starfsheitinu flugfreyjur og þjónar - „Nei, en öryggis- og þjónustuliði er hið opinbera orð sem notað er í íslensku regluverki,“ segir í svari Icelandair við fyrirspurn fréttastofu.

Hlutverk öryggis- og þjónustuliða verður fyrst og fremst að passa öryggið um borð. Þjónustustig um borð í vélum Icelandair mun áfram taka mið af þeim ráðstöfunum sem gerðar hafa verið vegna COVID-19 og verður því í lágmarki. Flugmenn Icelandair munu ganga í þessi störf þangað til að Icelandair hefur samið við annað stéttarfélag. Icelandair segist geta leitað til „þónokkurra“ stéttarfélaga en að engin ákvörðun hafi enn verið tekin um hver það verður.

Sem fyrr segir funda flugfreyjur nú í Kópavogi. Fréttastofan hefur leitað eftir viðbrögðum frá starfandi formanni FFÍ, Guðlaugu Líneyju Jóhannsdóttur, en ekki hefur náðst á hana. Ljóst er að ákvörðun Icelandair hefur verið mörgum þeirra þungbær og hefur verið kallað eftir því, í lokuðum Facebook-hóp FFÍ, að sett verði á laggirnar úrræði þangað sem félagsmenn geta leitað eftir stuðningi. „Þvílíkt áfall, sorg, reiði og óvirðing í okkar garð,“ skrifar einn félagsmaður eftir tíðindi dagsins.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×