Innlent

Sex smit greindust á landamærunum

Andri Eysteinsson skrifar
Frá skimunaraðstöðunni á Keflavíkurflugvelli.
Frá skimunaraðstöðunni á Keflavíkurflugvelli. Vísir/Elísabet Inga

Sex greindust með kórónuveiruna við skimun á landamærum Íslands í gær. Mótefni hafa þegar mælst í einu sýnanna en beðið er eftir niðurstöðum mótefnamælingar í hinum tilfellunum fimm.

1460 sýni voru tekin á landamærunum í gær og 179 á Sýkla- og veirufræðideild LSH.

Fimm eru í einangrun vegna veirunnar og 90 eru í sóttkví.

Alls hafa 1.922 smit verið staðfest frá 28. febrúar 2020 en ekkert innanlandssmit hefur greinst frá 2. júlí síðastliðnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×