Innlent

Fimm­tíu öku­menn kærðir fyrir hrað­akstur

Sylvía Hall skrifar
Tveir þeirra sem hafa verið kærðir höfðu aldrei öðlast ökuréttindi.
Tveir þeirra sem hafa verið kærðir höfðu aldrei öðlast ökuréttindi. Vísir/vilhelm

Um fimmtíu ökumenn hafa verið kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum undanfarna daga. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.

Tveir þeirra sem hafa verið kærðir höfðu aldrei öðlast ökuréttindi og tveir eru grunaðir um ölvunarakstur.

Í tilkynningunni segir að lögregla hafi haft afskipti af fleiri ökumönnum sem grunaðir voru um ölvunarakstur og þeir teknir úr umferð. Skráningarnúmer hafi jafnframt verið fjarlægð af nokkrum bifreiðum sem reyndust óskráðar eða ótryggðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×