Spila á sama velli og drógust saman í enska bikarnum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. janúar 2020 18:00 Coventry City og Birmingham City spila bæði í bláum búningum en bara ekki eins bláum. Getty/Jan Kruger/
Coventry City og Birmingham City ætla að skipta á milli sín aðgöngumiðunum í bikarleik þeirra um þar næstu helgi. Þetta er óvenjulegt enda eru þessi tvö félög í óvenjulegri aðstöðu. Coventry City og Birmingham City drógust á móti hvoru öðru í 4. umferð ensku bikarkeppninnar og fer leikurinn fram 25. janúar næstkomandi. Í enska bikarnum er það venjan að útiliðið fái aðeins lítinn hluta af miðunum í bikarleikjum en félögin ákváðu hins vegar að skipta miðunum á milli sín. Það er góð ástæða fyrir því. This could be a great atmosphere! Coventry City and Birmingham City who are currently groundsharing have agreed to share around half of the tickets for their #FACup fourth-round tie.https://t.co/kdL3hGd2G3pic.twitter.com/2Y28fzPjYt— BBC Sport (@BBCSport) January 16, 2020 Coventry City og Birmingham City eru nefnilega nágrannalið og að auki deila þau leikvangi á þessu tímabili. Bikarleikur liðanna fer fram á St Andrew's sem er venjulega bara heimavöllur Birmingham City. Birmingham City hefur spilað á vellinum síðan 1906 eða í meira en hundrað ár. Á þessu tímabili fékk Coventry City að spila heimaleiki sína á leikvanginum og það er Coventry sem er á heimavelli í umræddum bikarleik. Coventry City átti í deilum um leigu á heimavelli sínum, Ricoh Arena, og svo fór á endanum að viðræðurnar leystust upp og félagið ákvað að leita til Birmingham City. Á milli leikvanganna eru um 35 kílómetrar en Coventry er 360 þúsund manna borg, vestur af Birmingham.
Enski boltinn Mest lesið „Mjög skemmtilegt og sérstaklega á móti Íslandi“ Handbolti Segir áhorfendatölur á HM ýktar: „Leið eins og það væru svona fimm hundruð“ Handbolti Lætur ekki glepjast þrátt fyrir þrettán marka sigur: „Hafa ekki efni á þessu“ Handbolti „Óheppni ef þú gerir þetta einu sinni en síendurtekið er þetta bara lélegt“ Handbolti HM í dag: Bitur Króati og blaðamenn í brasi Handbolti Haaland skrifaði undir níu og hálfs árs samning við City Enski boltinn Bitur reynsla Arnars nú skilaboð til leikmanna Íslands: „Í guðanna bænum“ Fótbolti Skýrsla Vals: Píptest og svefnlyf Handbolti Gapandi hissa á „katastrófu“ í leik Íslands: „Hvaða grín er þetta?“ Handbolti Myndasyrpa úr stórsigri strákanna í fyrsta leik á HM Handbolti Fleiri fréttir Hetja United: „Ein besta vika lífs míns“ Haaland skrifaði undir níu og hálfs árs samning við City Diallo bjargaði málunum fyrir United á Old Trafford Foden: Við erum ekki heimskir, titillinn er farinn Arsenal kom til baka og vann slaginn um Norður-London Isak áfram í stuði og Moyes tapaði fyrsta leik Amorim: Southampton mun kenna mér meira en Liverpool og Arsenal Klopp: Ég held partý ef Man City missir titlana Slot segir að Forest sé í titilbaráttu Glazer-systkinin dvöldu á Vopnafirði í sumar Arftakar Linekers í Match of the Day kynntir Fenginn aftur til Chelsea og spilar ekki í kvöld Littler skildi ekkert hvað Sir Alex sagði Malen mættur til Villa Jafnt í toppslagnum í Skírisskógi Ótrúleg endurkoma heimamanna James bjargaði heimaliðinu Fyrrum fyrirliði og þjálfari Man City látinn Segja að Zubimendi fari til Arsenal í sumar Arteta um ógeðslegu skilaboðin: „Verður að draga línu í sandinn“ Engin stig tekin af ensku liðunum Tímabilinu líklega lokið hjá Jesus Guardiola skilinn eftir þrjátíu ára samband Fyrirliði Man United sendi Jóa Berg og fjölskyldu fallega gjöf Á morgun opinberar enska úrvalsdeildin hvaða liðum verður refsað Conte vill fá Garnacho í staðinn fyrir Kvaratskhelia Littler hunsaði Beckham óvart Domino's gerði grín að Havertz Mærði hetju United: „Líf þitt getur breyst á einni viku“ Ólétta eiginkonan birti viðbjóðsleg skilaboð Sjá meira