Körfubolti

„Hef aldrei séð leikmann gera neitt svona á móti Hlyni

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar

Hlynur Bæringsson og Dominykas Milka áttu í mikilli baráttu í leik Keflavíkur og Stjörnunnar í Domino's deild karla á föstudaginn. Farið var yfir einvígi þeirra í Domino's Körfuboltakvöldi.

„Ég hef aldrei séð leikmann gera neitt svona á móti Hlyni,“ sagði Sævar Sævarsson.

Átökin undir körfunni voru mikil og bæði Milka og Hlynur gáfu allt í leikinn sem Stjörnumenn unnu, 77-83.

„Myndavélin segir ekki hversu mikil átök þetta eru. Þetta er sjúklega mikið álag á líkamann,“ sagði Pálína Gunnlaugsdóttir um baráttu stóru strákanna.

Innslagið í heild sinni má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×