Það er nú þegar ljóst að kórónaveiran mun hafa gífurleg áhrif á íþróttaviðburði næstu vikna og mánuða. Nú er þegar farið að tala um mögulega frestun Ólympíuleikana, Berglind Björg Þorvaldsdóttir fékk ekki leyfi frá AC Milan til að verðast með íslenska landsliðinu í knattspyrnu til Spánar þar sem liðið verður við æfingar og þá verður stórleikur ítölsku úrvalsdeildarinnar á sunnudag þar sem Juventus og Inter Milan mætast leikinn fyrir luktum dyrum.
Bæði Newcastle United og West Ham United hafa bannað handabönd á æfingasvæðum sínum til að koma í veg fyrir útbreiðslu veirunnar. Reikna má því að leikmenn þeirra muni þar af leiðandi ekki taka í hendur mótherja sinna um helgina en Newcastle mætir Burnley á meðan West Ham mætir Southampton.
Þá hefur BBC greint frá því að knattspyrnumenn í Fifpro, stéttarfélagi knattspyrnumanna á heimsvísu, hafi þegar haft samband varðandi það að spila í áhættusömu umhverfi. Ýmis knattspyrnusambönd hafa nú þegar gripið í taumana til að reyna hindra úbreiðslu veirunnar.
Leikjum í efstu tveimur deildunum í Sviss hefur verið frestað. Ýmsum íþróttaviðburðum í Asíu hefur verið frestað og þá munu alls fimm leikir í Serie A deildinni á Ítalíu fara fram fyrir luktum dyrum um helgina. Valencia, sem leikur í spænsku úrvalsdeildinni, hefur frestað öllum opinberum fundum og samkomum félagsins.
Þá hefur Son Heung-min, leikmaður Tottenham Hotspur, staðfest að hann muni fara í einangrun heima hjá sér þegar hann kemur til baka frá heimalandi sínu Suður-Kóreu en hann fór þar í aðgerð á hendi.
Alls eru 65 knattspyrnusambönd aðilar að Fifpro og nú þegar er umræða farin af stað um að fresta landsleikjum sem og leikjum félagsliða í Evrópukeppni.
Engin handabönd um helgina og íþróttaviðburðir í hættu
Tengdar fréttir
Leik Berglindar frestað vegna útbreiðslu Covid-19 veirunnar á Ítalíu
Berglind segir að þungt sé yfir fólki á Ítalíu vegna kórónaveirunnar Covid-19.
Börsungar þurfa í læknisskoðun við komuna til Ítalíu vegna kórónaveirunnar
Leikmenn og starfslið Barcelona mun gangast undir ítarlega skoðun er liðið mætir til Ítalíu í dag. Kannað verður hvort að einhver innan hópsins beri einkenni kórónaveirunnar.
Kórónuveiran farin að hafa áhrif á íslenska kvennalandsliðið í fótbolta
Berglind Björg Þorvaldsdóttir verður ekki með íslenska kvennalandsliðinu á Pinatar Cup æfingamótinu á Spáni sem hefst í byrjun næsta mánaðar.
Lukaku og samherjar leika fyrir luktum dyrum vegna kórónaveirunnar
Leikur Inter Milan og Ludogorets verður leikinn fyrir luktum dyrum vegna kórónaveirunnar er liðin mætast í Evrópudeildinni á fimmtudaginn.
Útilokar ekki að fresta Ólympíuleikunum um eitt ár
Ólympíuleikunum sem eiga að fara fram í Tókýó í sumar verður frestað ef þess gerist þörf, segir Dick Pound, meðlimur stjórnar Alþjóðlega Ólympíuráðsins.
Toppslagur Inter og Juventus fer fram fyrir luktum dyrum
Engir áhorfendur verða á Allianz vellinum í Tórínó þegar Inter tekur á móti Juventus í toppslag í ítölsku úrvalsdeildinni á sunnudagskvöldið.
Sportpakkinn: Kórónaveiran hefur mikil áhrif á næstu leiki Inter
Engir áhorfendur verða á næstu tveimur leikjum Inter.
Leikjum á Ítalíu frestað vegna ótta við útbreiðslu kórónaveirunnar
Tveir hafa látist af völdum COVID19-veirunnar á Ítalíu.