Innlent

Bein útsending: Landsþing Viðreisnar

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er formaður Viðreisnar og ein í framboði til formanns.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er formaður Viðreisnar og ein í framboði til formanns. Vísir/Kristófer Helgason

Stjórn Viðreisnar heldur þriðja landsþing í dag klukkan 16. Þingið verður alrafrænt og er áætlað að það standi til klukkan 18:30.

Vegna þess ástands sem nú ríkir hefur stjórn ákveðið að einungis skuli kosið í helstu embætti sem samþykktir kveða á um og stjórnmálayfirlýsing afgreidd. Landsþinginu verður svo frestað og þar með öðrum dagskrárliðum landsþings, svo sem breytingum á lögum flokksins og öðrum málefnaályktunum.

Fundurinn verður alrafrænn og allar upplýsingar um hann má finna hér. Kosningar verða rafrænar og hægt að kjósa í gegnum síma eða tölvu. Til að tryggja öryggi kosninganna verða þinggestir að skrá sig á þar til gerðan kosningavef með rafrænum skilríkjum en tryggt verður að kosningar verði leynilegar og órekjanlegar.

Kosið verður til eftirfarandi embætta:

Formanns Viðreisnar, varaformanns Viðreisnar, fimm meðstjórnenda og tveggja varamanna stjórnar Viðreisnar og formenn málefnanefnda Viðreisnar.

Beina útsendingu má sjá að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×