Hákarl snerti næstum tærnar á brimbrettakappa sem var engu nær Samúel Karl Ólason skrifar 8. október 2020 16:02 Hákarlinn synti mjög nærri Wilkinson.
Brimbrettakappinn Matt Wilkinson komst í gær í mikið návígi við hákarl, án þess að hafa hugmynd um það. Atvikið var fangað á myndband með dróna og dróninn var notaður til að vara Wilkinson við ferðum hákarlsins og segja honum að fara í land. Hákarlinn var 2,5 metra langur nautháfur. Wilkinson var á brimbretti sínu undan ströndum Nýja Suður Wales í Ástralíu í gær þegar dróna var flogið að honum og í gegnum hátalara á drónanum var hann varaður við því að hættulegur hákarl væri á svæðinu og honum sagt að fara í land. Hann hafði þó ekki hugmynd um að skömmu áður hafði hákarlinn synt aftan að honum nánast snert hann. „Þegar ég kom í land leið mér skringilega og baðverðirnir sýndu mér myndbandið og þá fattaði ég hversu nærri mér hann hefði komið án þess að ég hefði hugmynd um að hann væri þarna. Hann virðist hafa ætlað í fótinn á mér og hætt við,“ sagði Wilkingson við 9News í Ástralíu. Hann sagði það magnað að eitthvað svo stórt hefði synt í áttina að honum og ákveðið, einungis nokkra sentímetra frá honum, að éta hann ekki. Hákarlinn hefði augljóslega geta bitið hann. Drónar eru notaðir víða í Ástralíu til að vakta baðstrendur. Fyrir nokkrum vikum sást stór hákarl við strönd þar sem brimbrettamót fór fram. Á undanförnum dögum hafa hákarlar sést víða við strendur Ástralíu, samkvæmt 9News.
Ástralía Dýr Mest lesið Íbúí í Holtunum smitaðist af hermannaveiki Innlent Sá fyrsti sem kallar eftir því að Biden stígi til hliðar Erlent Friðhelgin stórauki vald forsetans Erlent Sagður hafa nauðgað fatlaðri konu og látið son hennar horfa á Innlent Íslandsbankahúsið rústir einar Innlent Hafnaði utanvegar í Vatnsskarði Innlent Tveir góðkunningjar flúðu lögregluna á hlaupahjóli Innlent Umræðan verði að vera málefnaleg Innlent Albert ákærður fyrir kynferðisbrot Innlent Lenti með höfuðið á malbikinu þegar maður tók fram úr bílalest Innlent Fleiri fréttir Sá fyrsti sem kallar eftir því að Biden stígi til hliðar Friðhelgin stórauki vald forsetans Ákvörðun um refsingu Trump frestað 87 talin af vegna troðnings Einn látinn og þúsundir án vatns og rafmagns Enn slasast tugir í ókyrrð Orbán hyggst óvænt heimsækja Úkraínu Í höndum Macron að koma í veg fyrir stórsigur Le Pen Hæstiréttur segir Trump njóta friðhelgi að hluta Einn helsti rithöfundur Albaníu er allur Strangrúaðir mótmæltu herskyldu Varað við fellibylnum Beryl sem er á leið yfir Karíbahafið Kínversk geimflaug hrapaði til jarðar Flestir á því að Biden valdi ekki starfinu Sögulegur dagur fyrir frönsku þjóðina að baki „Ástæða til að hafa áhyggjur“ Franska þjóðfylkingin leiðir samkvæmt útgönguspám Vöknuðu á floti og stigu út með drulluna upp að hnjám „Fólk er einfaldlega hrætt“ Leitin að Slater blásin af Frakkar ganga að kjörborðinu Útlitið svart hjá Macron fyrir kosningar á morgun Bandarískum kjósendum líst illa á stöðuna í forsetaslagnum Ungur maður tekinn af lífi fyrir að hlusta á K-pop í Norður-Kóreu Efna til allsherjarleitar að Slater Mossack og Fonseca heitinn sýknaðir Segir Biden „algjörlega vanhæfan“ „Ég veit að ég er ekki ungur maður“ „Fíaskó næturinnar“ gæti kallað á nýjan frambjóðanda Ævilangt fangelsi fyrir morðið og nauðganirnar Sjá meira