Innlent

Eftirlit með tæplega 160 börnum vegna Covid

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
26 liggja nú á spítala vegna Covid-19.
26 liggja nú á spítala vegna Covid-19. Vísir/Vilhelm

Rúmlega þúsund sjúklingar eru í eftirliti Covid-19 göngudeildar Landspítalans, eða 1025 og þar af eru 156 börn. Þetta kemur fram í tilkynningu viðbragðsstjórnar og farsóttanefndar Landspítalans.

Nú liggja 26 Covid sjúklingar á Landspítala, einum meira en í gær. Þá eru þrír á gjörgæslu og tveir í öndunarvél eins og í gær.

79 starfsmenn spítalans eru í sóttkví og 26 starfsmenn í einangrun.


Tengdar fréttir

Segir óþarfa áhættu að hafa skóla og veitingastaði opna

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, hefði viljað ganga lengra í samkomutakmörkunum til að kveða niður faraldur kórónuveirunnar. Alls greindust sextíu með kórónuveiruna innanlands í gær. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×