Fjórir óvæntir sem hjálpuðu Lakers að landa titlinum Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 13. október 2020 22:46 Leikmenn og starfslið Los Angeles Lakers fagna 17. titli félagsins. Los Angeles Lakers
Los Angeles Lakers vann sinn 17. meistaratitil þegar það lagði Miami Heat af velli í sjötta leik NBA-úrslitakeppninnar í körfubolta. Eftir þetta langa og stranga tímabil var það LeBron James sem vann sinn fjórða meistaratitil og var í leiðinni valinn besti leikmaður úrslitaeinvígisins, einnig í fjórða sinn. LeBron hefur nú unnið með Miami Heat, Cleveland Cavaliers og Los Angeles Lakers. Hann ásamt Anthony Davis eru tvær stærstu ástæður þess að titillinn er kominn til Los Angeles á nýjan leik. Proud of my friend @KingJames for his fourth title, fourth Finals MVP, and for not only living up to the hype after seventeen seasons, but surpassing it as an extraordinary leader both on the court and in the public arena fighting for education, social justice, and our democracy. pic.twitter.com/2IB3ZDI4Nf— Barack Obama (@BarackObama) October 12, 2020 Síðasta sumar var Anthony Davis sóttur frá New Orleans Pelicans. Á móti fóru Lonzo Ball, Josh Hart og Brandon Ingram ásamt því að Lakers gaf frá sér valrétti í nýliðavali komandi ára. Lakers ætluðu upphaflega að búa til ´Big 3´ lið og átti þriðja ofurstjarnan að ganga til liðs við félagið undir lok félagaskitpagluggans í deildinni. Talið var að Kawhi Leonard yrði það púsl. Hann ákvað á síðustu stundu að velja Los Angeles Clippers fram yfir Los Angeles Lakers og því þurfti Rob Pelinka, framkvæmdastjóri Lakers, að láta hendur standa fram úr ermum. The Athletic tók saman [fyrir sjötta leik liðanna] hvaða félagaskipti hafa skilað hvað mestu í hús fyrir Lakers. Danny Green, meistari með Toronto Raptors á síðustu leiktíð og San Antonio Spurs á sínum tíma, var sóttur á 15 milljón dollara samning. Þá hefur Kentavious Caldwell-Pope með betri leikmönnum Lakers í úrslitakeppninni. Þriggja stiga skotnýting hans hefur verið frábær sem og hann hefur átt góða leiki varnarlega gegn mönnum á borð við Damian Lillard, James Harden og Jamal Murray. Hvorugur þeirra er þó á þessum fjögurra manna lista sem The Athletic tók saman. Þar eru ekki heldur þeir Avery Bradley [sem tók ekki þátt í NBA-búblunni svokölluðu], JaVale McGee, Quinn Cook né DeMarcus Cousins [sem reif krossband í hné skömmu eftir að semja við félagið]. Pelinka þurfti að sækja leikmenn sem myndu ekki aðeins gera Lakers betra í deildarkeppninni. LeBron og Davis myndu í 99 prósent tilvika skila liðinu inn í úrslitakeppnina. Pelinka þurfti að sækja menn sem myndu standa upp úr í úrslitakeppninni. Þar dró hann fjórar kanínur upp úr hattinum. Þeir Alex Caruso, Rajon Rondo, Dwight Howard og Markieff Morris [kom í febrúar] komu fyrir samtals 9.62 milljónir bandaríkjadala. Samtals fengu þeir fjórir minna borgað en 129 leikmenn deildarinnar. Mood pic.twitter.com/Cmxrx7BKtr— Los Angeles Lakers (@Lakers) October 13, 2020 Rajon Rondo Hefur verið hreint út sagt magnaður í úrslitakeppninni og staðið undir viðurnefninu ´Playoff-Rondo´ eða Úrslitakeppnis-Rondo. Hann meiddist snemma í NBA-búbblunni en snéri aftur gegn Houston Rockets í úrslitakeppninni. Hann stal boltanum fimm sinnum og gaf níu stoðsendingar í leik tvö gegn Houston sem snéri einvíginu Lakers í hag. Hann hefur hitt vel úr þriggja stiga skotum og spilað hörku vörn enda mjög klókur leikmaður. Þá skilaði hann 19 stigum í sjötta og síðasta leik liðanna ásamt því að gefa fjórar stoðsendingar og taka fjögur fráköst. Fyrir úrslitaleikinn var hann með að meðaltali 6.9 stoðsendingar í leik. Aðeins sex leikmenn voru með fleiri að meðaltali og það voru allt byrjunarliðsmenn. Alls gaf hann 105 stoðsendingar í úrslitakeppninni, eitthvað sem varamaður hefur ekki náð síðan tímabilið 1970-1971. Alex Caruso Hinn 26 ára gamli Alex Caruso hefur einnig komið verulega á óvart en hann byrjaði til að mynda úrslitaleikinn sjálfan. Hann skilar ekki endilega frábærri tölfræði hvað varðar stig, stoðsendingar og fráköst. Vinna Caruso sést ekki endilega á blaði með tölfræði. Það virðist þó sem Lakers séu betri með hann inn á vellinum og það sést á stigaskori liðsins þegar hann spilar. Þá tengja hann og Lebron frábærlega. Who out there loves Alex Caruso? pic.twitter.com/PIjYWKNDD9— Los Angeles Lakers (@Lakers) October 13, 2020 Hann hafði aðeins spilað í G-deildinni [varaliðsdeild NBA-liðanna] áður en Lakers tóku hann inn í leimannahóp sinn. Caruso hefur síðan blómstrað í vetur og fær eflaust áframhaldandi samning hjá Lakers. Dwight Howard Dwight Howard hafði verið afskrifaður af mörgum. Átti skelfilegt tímabil með Lakers á sínum tíma og virtist sem deildin hefði misst trú á honum. Hinn 34 ára gamli miðherji gekk í gegnum endurnýjun lífdaga og landaði sínum fyrsta NBA-titli nú á aðfaranótt mánudags. Frank Vogel, þjálfari Lakers, notaði Howard á réttum tímapunktum í úrslitakeppninni og Howard skilaði nær alltaf sínu. https://t.co/nWfYdR9DMz pic.twitter.com/mGomlJZ2Rx— Los Angeles Lakers (@Lakers) October 12, 2020 Markieff Morris Að lokum er það hinn 31 árs gamli Markieff Morris sem kom á tombóluverði í febrúar. Hann hafði ekki spilað gegn Portland Trail Blazers í fyrstu umferð en það kviknaði heldur betur í Morris gegn Houston. Hann og Rondo umturnuðu seríunni en Morris hitti úr fjórum þriggja stiga skotum í röð, þrjú þeirra eftir sendingar frá Rondo. Það er nær ómögulegt að finna leikmenn í febrúar sem geta aðstoðað lið í úrslitakeppniinni en Pelinka tókst það með Morris. All Glory to God!! pic.twitter.com/SdE9A2Ml2E— Keef Morris (@Keefmorris) October 12, 2020 Óvíst er hvort Lakers mæti með sama leikmannahóp á næsta tímabili enda margir af áðurnefndum leikmönnum komnir á aldur og eflaust þarf Pelinka að draga fleiri kanínur úr hattinum fari svo að liðið fái ekki þriðju ofurstjörnuna í sumar.
Körfubolti NBA Tengdar fréttir Fær meistarahring þrátt fyrir að hafa ekki spilað mínútu í úrslitakeppninni Los Angeles Lakers er ekki búið að gleyma framlagi Averys Bradley í vetur og hann fær meistarahring þótt hann hafi ekki spilað með liðinu í úrslitakeppninni. 13. október 2020 16:00 Barack Obama er stoltur af LeBron James LeBron James á sér öflugan stuðningsmann í Barack Obama, fyrrum Bandaríkjaforseta. 13. október 2020 14:46 Brady sendi LeBron hamingjuóskir Hamingjuóskum hefur rignt yfir lið Los Angeles Lakers eftir að þeir urðu NBA-meistarar í nótt og þá sérstaklega LeBron James. 12. október 2020 21:31 Spilaði varla hjá Lakers en var kominn úr að ofan áður en leikurinn kláraðist J.R. Smith spilaði bara í örfáar mínútur í lokaúrslitum NBA-deildarinnar í ár en var kominn úr að áður en leiktíminn rann út þegar NBA titilinn var í höfn hjá Lakers í nótt. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem skyrtuleysi J.R. Smith kemst í fréttirnar. 12. október 2020 16:31 LeBron sendi hælbítunum tóninn: „Ég vil mína helvítis virðingu“ LeBron James gaf efasemdarmönnum langt nef með frammistöðu sinni í úrslitakeppni NBA-deildarinnar sem lauk í nótt. 12. október 2020 09:31 Tileinkaði Kobe titilinn: „Veit að hann er stoltur af okkur“ Kobe Bryant var ofarlega í huga margra eftir að Los Angeles Lakers varð NBA-meistari í sautjánda sinn í nótt. 12. október 2020 08:31 Segir að LeBron sé besti leikmaður allra tíma Þjálfari Los Angeles Lakers hrósaði LeBron James í hástert eftir að liðið varð NBA-meistari í sautjánda sinn í nótt. 12. október 2020 07:30 LeBron James í þrennustuði þegar Lakers varð NBA-meistari í sautjánda sinn Los Angeles Lakers varð í nótt NBA-meistari í körfubolta eftir sannfærandi sigur í sjötta leiknum á móti Miami Heat í úrslitaeinvíginu um titilinn. Lakers endaði lengsta tímabil í sögu NBA með sínum fyrsta meistaratitli í tíu ár og þeim sautjánda í sögunni. 12. október 2020 02:25 Mest lesið Barn beit dómarann á mjög viðkvæman stað og leik var aflýst Fótbolti Breyttist í Messi þegar það vantaði Messi Fótbolti „Urðum okkur sjálfum til skammar“ Körfubolti Nottingham Forest vann aftur eftir vítakeppni Enski boltinn Juventus nálgast titilbaráttuna óðfluga Fótbolti Man. United má ekki nota unga framherjann sinn í Evrópudeildinni Enski boltinn Aflýstu leik í spænsku deildinni vegna flóðahættu Fótbolti Vinícius Júnior vill nýjan Real Madrid samning strax Fótbolti Jón Otti körfuboltadómari fallinn frá Körfubolti Martin og félagar gulir og glaðir þriðja leikinn í röð Körfubolti Fleiri fréttir „Urðum okkur sjálfum til skammar“ Martin og félagar gulir og glaðir þriðja leikinn í röð „Niðurdrepandi og leiðinlegar fréttir“ Butler gleymdi að mála og greiða leiguna Meistarar mætast í bikarnum Jón Otti körfuboltadómari fallinn frá Ómetanleg vinátta: „Við munum lifa á þessu vel og lengi“ „Gæti skilið á milli fyrir KR hversu góður hann er“ „Gefur okkur mikið sjálfstraust“ Þór ekki í teljandi vandræðum með Val Elvar Már öflugur í enn einu tapi Maroussi Grindavík lagði Aþenu í botnslagnum Uppgjörið: Keflavík - Haukar 96-105 | Aftur sóttu Haukar sigur í Sláturhúsið Tryggvi og félagar fjarlægjast fallsvæðið Kane minnir Pavel á Craion: „Vildu bara vinna“ Borche: Dómararnir sjá það sem þeir sjá Kári: Bara negla þessu niður „Held áfram nema ég verði rekinn“ „Ánægður með hvernig menn brugðust við mótlætinu“ Uppgjörið og viðtöl: KR - Höttur 97-75 | KR-ingar náðu í mikilvæg stig og felldu um leið Hattarmenn Uppgjör og viðtöl: Valur - ÍR 90-87 | Valsmenn styrktu stöðu sína Uppgjörið: Hamar/Þór - Tindastóll 77-72 | Mikilvægur sigur heimaliðsins Embiid frá út leiktíðina „Óafsakanlegt hvernig við mættum til leiks“ „Tilefnið stórt og sterkt að landa sigri“ „Ákveðnir í því að gefa þeim enga von“ „Ég er stríðsmaður og hef lent í þessu áður“ Mikilvægur sigur Þórs í háspennuleik Uppgjörið: Álftanes - Tindastóll 102 - 89 | Fimmti sigur Álftaness í röð kom gegn toppliðinu Tindastóli Uppgjörið: Njarðvík - Haukar 103-81 | Hafnfirðingnar fallnir Sjá meira
Fær meistarahring þrátt fyrir að hafa ekki spilað mínútu í úrslitakeppninni Los Angeles Lakers er ekki búið að gleyma framlagi Averys Bradley í vetur og hann fær meistarahring þótt hann hafi ekki spilað með liðinu í úrslitakeppninni. 13. október 2020 16:00
Barack Obama er stoltur af LeBron James LeBron James á sér öflugan stuðningsmann í Barack Obama, fyrrum Bandaríkjaforseta. 13. október 2020 14:46
Brady sendi LeBron hamingjuóskir Hamingjuóskum hefur rignt yfir lið Los Angeles Lakers eftir að þeir urðu NBA-meistarar í nótt og þá sérstaklega LeBron James. 12. október 2020 21:31
Spilaði varla hjá Lakers en var kominn úr að ofan áður en leikurinn kláraðist J.R. Smith spilaði bara í örfáar mínútur í lokaúrslitum NBA-deildarinnar í ár en var kominn úr að áður en leiktíminn rann út þegar NBA titilinn var í höfn hjá Lakers í nótt. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem skyrtuleysi J.R. Smith kemst í fréttirnar. 12. október 2020 16:31
LeBron sendi hælbítunum tóninn: „Ég vil mína helvítis virðingu“ LeBron James gaf efasemdarmönnum langt nef með frammistöðu sinni í úrslitakeppni NBA-deildarinnar sem lauk í nótt. 12. október 2020 09:31
Tileinkaði Kobe titilinn: „Veit að hann er stoltur af okkur“ Kobe Bryant var ofarlega í huga margra eftir að Los Angeles Lakers varð NBA-meistari í sautjánda sinn í nótt. 12. október 2020 08:31
Segir að LeBron sé besti leikmaður allra tíma Þjálfari Los Angeles Lakers hrósaði LeBron James í hástert eftir að liðið varð NBA-meistari í sautjánda sinn í nótt. 12. október 2020 07:30
LeBron James í þrennustuði þegar Lakers varð NBA-meistari í sautjánda sinn Los Angeles Lakers varð í nótt NBA-meistari í körfubolta eftir sannfærandi sigur í sjötta leiknum á móti Miami Heat í úrslitaeinvíginu um titilinn. Lakers endaði lengsta tímabil í sögu NBA með sínum fyrsta meistaratitli í tíu ár og þeim sautjánda í sögunni. 12. október 2020 02:25
Uppgjörið og viðtöl: KR - Höttur 97-75 | KR-ingar náðu í mikilvæg stig og felldu um leið Hattarmenn
Uppgjörið: Álftanes - Tindastóll 102 - 89 | Fimmti sigur Álftaness í röð kom gegn toppliðinu Tindastóli