Innlent

Talið að eldurinn hafi kviknað út frá lampa

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Frá vettvangi brunans í Kópavogi í gær.
Frá vettvangi brunans í Kópavogi í gær. Vísir

Talið er að eldur sem kviknaði í íbúðarhúsi við Arakór í Kópavogi síðdegis í gær hafi kviknað út frá lampa. Þetta staðfestir Heimir Ríkharðsson lögreglufulltrúi hjá lögreglu í Kópavogi í samtali við Vísi.

Tíu hundar voru í húsinu þegar eldurinn kom upp. Sex þeirra drápust í brunanum en fjórum var bjargað og komið til aðhlynningar hjá dýralækni. Engan íbúa hússins sakaði í brunanum.

Heimir segir að tæknideild hafi lampann nú til rannsóknar. Talsvert tjón varð á húsinu.


Tengdar fréttir

Sex hundar brunnu inni í Kópavogi

Fjórum hundum var hins vegar bjargað úr brunanum, líkt og greint var frá í gær, og þeir fluttir til skoðunar hjá dýralækni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×