Viðskipti innlent

Landsbankahús Guðjóns Samúelssonar á Selfossi til sölu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Landsbankahúsið á Selfossi stndur við Austurveg og því fyrir augum allra sem aka í gegnum bæinn á leið sinni á Þjóðvegi 1. Það mun reyndar breytast þegar ný brú yfir Ölfusá verður byggð.
Landsbankahúsið á Selfossi stndur við Austurveg og því fyrir augum allra sem aka í gegnum bæinn á leið sinni á Þjóðvegi 1. Það mun reyndar breytast þegar ný brú yfir Ölfusá verður byggð. Landsbankinn

Hús Landsbankans við Austurveg 20 á Selfossi hefur verið auglýst til sölu. Húsið var reist á árunum 1949-1953 og sýnilegt öllum sem aka í gegnum bæinn. Á vef bankans segir að það hafi löngum verið talið eitt fallegasta húsið á Suðurlandi.

Breytingar á bankaþjónustu valdi því að útibúið þurfi nú minna húsnæði undir starfsemi sína. Gert er ráð fyrir að útibúið verði áfram í húsinu þar til að starfsemi þess getur hafist á nýjum stað á Selfossi.

Landsbankinn opnaði útibú í Tryggvaskála á Selfossi árið 1918 en flutti árið eftir í eigið húsnæði að Austurvegi 21. Þar var útibúið til ársins 1953 þegar það flutti í núverandi húsakynni.

Garðurinn fyrir aftan húsið.Landsbankinn

Landsbankahúsið á Selfossi er byggt eftir frumteikningum Guðjóns Samúelssonar en honum entist ekki aldur til að fylgja verkinu eftir því hann lést árið 1950.

Auk þess að hýsa bankastarfsemi voru í húsinu tvær íbúðir. Önnur í vesturenda annarrar hæðar ætluð útibússtjóra og hin ætluð húsverði í austurenda kjallarans. Samkomusalur og kaffistofa voru á rishæð. Austurendi annarrar hæðar var leigður út fyrstu árin.

Á vefsíðu bankans segir að húsið hafi frá upphafi hlotið gott viðhald. Grunnflötur hússins er rúmlega 300 fermetrar en samtals er skráð stærð hússins, að kjallara og risi meðtöldu 1.137 fermetrar auk 77 fermetra bílskúrs. Efri hæðin er í útleigu. Lóð hússins er rúmlega 7.300 m2.

Landsbankinn segist áskilja sér rétt til að hafna öllum tilboðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×