Síðasti bóksölulistinn fyrir jól: Ólafur Jóhann veltir Arnaldi úr hásæti sínu Jakob Bjarnar skrifar 16. desember 2020 11:03 Birgitta, Arnaldur og Ólafur Jóhann. Fólkið sem er að gera það best í bóksölunni nú þegar jólabókaflóðið er í hámarki. Þau undur og stórmerki urðu þessa vikuna að Ólafur Jóhann hrinti Arnaldi úr toppsætinu en Arnaldur er þó á toppi lista yfir uppsafnaða sölu. Birgitta gerir sér lítið fyrir og er með tvær bækur á aðallistanum. Bóksala hefur sjaldan eða aldrei verið meiri en nú. „
Það sætir tíðindum að Snerting, eftir Ólaf Jóhann Ólafsson, er nú komin í efsta sæti Bóksölulistans. Snerting er hlaðin stjörnum gagnrýnanda, var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna á dögunum og hefur setið í öðru sæti Bóksölulistans síðustu tvær vikur,“ segir Bryndís Loftsdóttir hjá Fibut – sérfræðingur Vísis í bóksölunni. Já, þetta er í frásögur færandi því Arnaldur Indriðason, sem nú situr í öðru sæti lista vikunnar, hefur einokað toppsætið undanfarin árin. Í þriðja og fjórða sætinu eru svo glæpasagnahöfundarnir Yrsa Sigurðardóttir og Ragnar Jónasson þannig að ekkert lát er á vinsældum krimmans. Þó Ólafur Jóhann hrifsi nú kórónuna af Arnaldi ber að hafa hugfast að Arnaldur á þó enn mest seldu bók ársins, uppsafnað og það er sá listi sem telur þegar upp er staðið. Engu að síður verður að teljast athyglisverður árangur hjá Ólafi en gaman er að geta þess að hann var í ítarlegu viðtali í höfundatali Vísis um síðustu helgi. Ólafur Jóhann er kominn í annað sæti uppsafnaða listans. Birgitta lætur að sér kveða „Það er svo heldur ekki hægt annað en að minnast á Birgittu Haukdal, sem þessa vikuna á þrár barnabækur á toppi metsölulistans, þar á meðal mest seldu barnabók vikunnar, Syngdu með Láru og Ljónsa,“ segir Bryndís. Og sannarlega væri fráleitt að líta hjá þessum árangri. Birgitta hefur slegið í gegn með bókaflokk sinn um Láru og Ljónsa og hefur nú um nokkurra ára skeið sett mark sitt á bóksölulistana. Samanlagt er Birgitta líklega bóksöludrottning ársins. Birgitta Haukdal hefur átt mikilli velgengni að fagna sem barnabókahöfundur. Hún er með tvær bækur á aðallistanum og líkast til er hún með mestu bóksöluna allra höfunda samanlagt fyrir þetta ár.visir/vilhelm Bóksölulistinn sem nú birtist er sá síðasti fyrir þessi jólin. Og listarnir sem birtast eru nú ítarlegri en verið hefur, þá til að sýna betur þá miklu útgáfu sem er í ár. Við stækkum bæði skáldverka- og fræðibókalistann úr tuttugu í þrjátíu. Ótrúlega gamlan og fróðlegt er að rýna í þessa lista en eins og fram hefur komið er bóksala nú með allra besta móti. Nú er tími bókarinnar. Bóksölulisti Fibut sem Vísir birtir jafnan í aðdraganda jóla er unninn út frá sölutölum frá eftirfarandi útsölustöðum bóka; A4, Bóksölu stúdenta, Bónus, Hagkaup, Samkaup verslana, Heimkaup, Forlagsverslunarinnar og Kaupfélags Skagfirðinga – það er í raun frá öllum helstu útsölustöðum bóka á landinu nema frá Eymundsson. Þetta eru listarnir eins og þar stendur. Þessir listar sem nú birtast taka til bóksölu dagana 7.-13. desember 2020. Skáldverkaútgáfan sjaldan eða aldrei betri Bryndís bendir á að helmingur, eða tíu af tuttugu mest seldu bókum vikunnar, eru íslensk skáldverk og hefur hlutfall þeirra ekki áður verið svo hátt á þessum árstíma. „Síðast liðin fimm ár hafa íslensk skáldverk verið að meðaltali um sjö af tuttugu eða 35 prósent og hlutur annarra bókaflokka þá verið meiri, til að mynda ævisagna, sem í ár ná ekki inn á þennan lista.“ Bryndís Loftsdóttir hjá Fibut. Hún segir bóksöluna sjaldan eða aldrei hafa verið eins mikla og núna. Bókaþjóðin hlýtur að fagna þessu. Skáldverkaútgáfan í ár er með allra mesta móti sem þýðir að jafnvel þótt salan gangi vel, þá dreifist hún á fleiri titla. Því mega höfundar gera ráð fyrir því að eintakasalan slái engin met í ár, jafnvel þótt heildarsala íslenskra bóka sé góð. „Þó hefur dregið úr þeirri miklu söluaukningu sem mælst hefur frá byrjun nóvember. Salan í síðustu viku var eiginlega á pari við söluna í fyrra, örlítið betri þó. Það þýðir að sú 30 prósentu aukning sem við sáum í sölu íslenskra bóka á þessu tímabili fyrir viku síðan er nú komin niður í rúmlega 17 prósent. Það er engu að síður vegleg söluaukning en segir okkur líka að við séum mun fyrr á ferð með jólagjafakaupin en nokkurn tímann áður,“ segir Bryndís. Konur aldrei sterkari í bóksölunni Þá þykist sérfræðingur Vísis greina breytingar í bóksölu sem kynjafræðingar við Háskóla Íslands hljóta að leggjast yfir með glampa í augum. „Það er áhugavert að skoða kynjaskiptingu íslenskra skáldverkahöfunda eftir sölulistanum,“ segir Bryndís. En konur sækja fram á öllum sviðum bókaútgáfunnar. Þannig eru fleiri konur tilnefndar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna en karlar auk þess sem sérstök kvennaverðlaun – Fjöruverðlaunin – eru veitt kvenrithöfundum. „Af tíu mest seldu skáldsögunum eiga karlkyns höfundar helming en svo ekki eina einustu af þeim tíu sem næstar koma. Af 30 mest seldu bókunum eru 11 bækur eða 36.6 prósent eftir karlmenn. Ég á eftir að skoða heildarútgáfuna, hvort þetta rímar við hlutfall útgefinna verka, hvort þetta sé ný þróun eða bara tilfallandi í ár,“ segir Bryndís. Spænska veikin sjóðheit Bryndís bendir einnig á að lesa megi tíðindi af fræðibókalistanum. Það eru líka tíðindi af fræðibókalistanum. Þar hefur Spænska veikin hans Gunnars Þórs Bjarnasonar nú skotist á toppinn. Gunnar Þór Bjarnason hittir sannarlega beint í mark með vel heppnaðri bók sinni um Spænsku veikina.Forlagið En þetta er sæti sem hinn afar vinsæli Óttar Sveinsson með sínar Útkallsbækur hefur nánast getað gengið að vísu mörg mörg undanfarin ár. „Hann hefur verið vinsæll fræðibókahöfundur, skrifaði meðal annars Upp með fánann og Þegar siðmenningin fór fjandans til. Tæplega hefur hann rennt í grun um hvað viðfangsefni Spænsku veikinnar ætti eftir að hitta í mark, þegar hann hóf undirbúning bókarinnar fyrir fjórum árum síðan.“ Bryndís er þar að vísa til þess að Spænska veikin kallast á við það ástand sem við búum við nú vegna kórónuveirunnar. „Þær eru margar, sögurnar í þessari bók sem snerta við tilfinningum manns, ekki síst að lesa um náungakærleik, matargjafir, fóstrun og fórnfúsa hjálpsemi blásnauðs almennings, jafnt sem stórmenna á borð við Thor Jensen og Garðar Gíslason. Hin besta aðventuhugvekja.“ Topplistinn 7. - 13. desember 2020 Snerting - Ólafur Jóhann Ólafsson Þagnarmúr - Arnaldur Indriðason Bráðin - Yrsa Sigurðardóttir Vetrarmein - Ragnar Jónasson Syngdu með Láru og Ljónsa - Birgitta Haukdal Orri óstöðvandi - Bókin hennar Möggu Messi - Bjarni Fritzson Spænska veikin - Gunnar Þór Bjarnason Útkall - Á ögurstundu - Óttar Sveinsson Gata mæðranna - Kristín Marja Baldursdóttir Þín eigin undirdjúp - Ævar Þór Benediktsson Dýralíf - Auður Ava Ólafsdóttir Lára lærir að lesa - Birgitta Haukdal Krakkalögin okkar - Jón Ólafsson, Úlfur Logason ofl. Fjarvera þín er myrkur - Jón Kalman Stefánsson Undir Yggdrasil - Vilborg Davíðsdóttir UNA prjónabók - Sjöfn Kristjánsdóttir og Salka Sól Eyfeld Dauðabókin - Stefán Máni Kökur - Linda Ben Lára fer í leikhús - Birgitta Haukdal Eldarnir : Ástin og aðrar hamfarir - Sigríður Hagalín Björnsdóttir Íslensk skáldverk Snerting - Ólafur Jóhann Ólafsson Þagnarmúr - Arnaldur Indriðason Bráðin - Yrsa Sigurðardóttir Vetrarmein - Ragnar Jónasson Gata mæðranna - Kristín Marja Baldursdóttir Dýralíf - Auður Ava Ólafsdóttir Fjarvera þín er myrkur - Jón Kalman Stefánsson Undir Yggdrasil - Vilborg Davíðsdóttir Dauðabókin - Stefán Máni Eldarnir : Ástin og aðrar hamfarir - Sigríður Hagalín Björnsdóttir Yfir bænum heima - Kristín Steinsdóttir Blóðrauður sjór - Lilja Sigurðardóttir Blóðberg - Þóra Karítas Árnadóttir Aprílsólarkuldi - Elísabet Kristín Jökulsdóttir Konan sem elskaði fossinn : Sigríður í Brattholti - Eyrún Ingadóttir 107 Reykjavík - Auður Jónsdóttir og Birna Anna Björnsdóttir Ein - Ásdís Halla Bragadóttir Hansdætur - Benný Sif Ísleifsdóttir Sykur - Katrín Júlíusdóttir Næturskuggar - Eva Björg Ægisdóttir Truflunin - Steinar Bragi Klettaborgin - Sólveig Pálsdóttir Bróðir - Halldór Armand Dauði skógar - Jónas Reynir Gunnarsson Herbergi í öðrum heimi - María Elísabet Bragadóttir Aðventa - Gunnar Gunnarsson Aldrei nema kona - Sveinbjörg Sveinbjörnsdóttir Váboðar - Ófeigur Sigurðsson Fyrir daga farsímans - Böðvar Guðmundsson Tengdadóttirin - Guðrún frá Lundi Íslenskar barna- og ungmennabækur Syngdu með Láru og Ljónsa - Birgitta Haukdal Orri óstöðvandi - Bókin hennar Möggu Messi - Bjarni Fritzson Þín eigin undirdjúp - Ævar Þór Benediktsson Lára lærir að lesa - Birgitta Haukdal Krakkalögin okkar - Jón Ólafsson, Úlfur Logason ofl. Lára fer í leikhús - Birgitta Haukdal Hetja - Björk Jakobsdóttir Leikskólalögin okkar - Jón Ólafsson, Úlfur Logason ofl. Fávitar - Sólborg Guðbrandsdóttir Barnaræninginn - Gunnar Helgason Hestar - Hjörleifur Hjartarson og Rán Flygenring Vampírur, vesen og annað tilfallandi - Rut Guðnadóttir Öflugir strákar: Trúðu á sjálfan þig - Bjarni Fritzson Gamlárskvöld með Láru - Birgitta Haukdal Fíasól og furðusaga um krakka með kött í maga - Kristín Helga Gunnarsdóttir Jól með Láru - Birgitta Haukdal Brandarar og gátur 5 - Huginn Þór Grétarsson Herra Bóbó, Amelía og ættbrókin - Yrsa Sigurðardóttir Iðunn og afi pönk - Gerður Kristný 13 þrautir jólasveinanna - Huginn Þór Grétarsson Þýddar barna- og ungmennabækur Jólaföndur : leikja-, lita og límmiðabók - Bókafélagið Verstu kennarar í heimi - David Walliams Jólasyrpa - Walt Disney Ísskrímslið - David Walliams Dagbók Kidda klaufa 13 : Snjóstríðið - Jeff Kinney Jól í Múmíndal - Tove Jansson Fótbolti - Meistaratatkar - Rob Colson Ding! Dong! Komum að leika! - Astley Baker Risaeðlugengið : Kappsundið - Lars Mæhle Sögutaskan mín - Isabelle Chauvet Lúkas ljónheppni - Kate Thomson Mannslíkaminn - Ryan Hobson Jólaföndur : engin skæri, bara gaman - Unga ástin mín Töfraeinhyrningurinn hennar Gurru gríss - Astley Baker Dagbók Kidda klaufa 12 : Flóttinn í sólina - Jeff Kinney Milljarðastrákurinn - David Walliams Sögur úr Múmíndal - Tove Jansson Hundmann 2 - Taumaus - Dav Pilkey Gurra Grís : leitið og finnið ævintýri - Peppa Pig Ég njósna með Múmínsnáðnum - Tove Jansson Fræði og almennt efni Spænska veikin - Gunnar Þór Bjarnason Útkall - Á ögurstundu - Óttar Sveinsson UNA prjónabók - Sjöfn Kristjánsdóttir og Salka Sól Eyfeld Kökur - Linda Ben Skipulag - Sólrún Diego Skipulagsdagbók - Sólrún Diego Íslenskir vettlingar - Guðrún Hannele Henttinen Þegar heimurinn lokaðist - Davíð Logi Sigurðsson Kindasögur II - Aðalsteinn Eyþórsson og Guðjón Ragnar Jónasson Hrein Karfa - Kjartan Atli Kjartansson Bubbi Morthens - ferillinn í fjörtíu ár - Árni Matthíasson Martröð í Mykinesi - Magnús Þór Hafsteinsson Bakað með Elenoru Rós - Eleora Rós Georgsdóttir Fimmaurabrandarar 2 - Fimmaurafélagið Prjónað á mig og mína - Lene Holme Samsøe Brimaldan stríða - Steinar J. Lúðvíksson Pottur, panna og Nanna - Nanna Rögnvaldardóttir Sumac - Þráinn Freyr Vigfússon Prjónað af ást - Lene Holme Samsøe Sturlunga geðlæknisins - Óttar Guðmundsson Björgunarsveitin mín - Arngrímur Hermannsson Fuglinn sem gat ekki flogið - Gísli Pálsson Samskipti - Pálmar Ragnarsson Tíu skref í átt að innihaldsríku lífi - Bergsveinn Ólafsson Guðjón Samúelsson húsameistari - Pétur Ármannsson Þess vegna sofum við : um mikilvægi svefns og drauma - Matthew Walker Mótorhausasögur - Ragnar S. Ragnarsson Draumaland : Frá fæðingu til sex ára aldurs - Arna Skúladóttir Saumaklúbburinn - Berglind Hreiðarsdóttir Hulduheimar - Símon Jón Jóhannsson Þýdd skáldverk Kóngsríkið - Jo Nesbø Jól í Sumareldhúsi Flóru - Jenny Colgan Brúðkaup í desember - Sarah Morgan Silfurvængir - Camilla Läckberg Þeir sem græta góðu stúlkurnar - Mary Higgins Clark Lygalíf fullorðinna - Elena Ferrante Menntuð - Tara Westover Glæpur við fæðingu - Trevor Noah Papa - Jesper Stein Sögur frá Sovétríkjunum - Ýmsir Ljóð og limrur 140 vísnagátur - Páll Jónasson Látra-Björg - Helgi Jónsson Gervilimrur Gísla Rúnars - Gísli Rúnar Björgvinsson Innræti - Arndís Þórarinsdóttir Hetjusögur - Kristín Svava Tómasdóttir Veirufangar og veraldarharmur - Valdimar Tómasson Taugaboð á háspennulínu - Arndís Lóa Magnúsdóttir Draumstol - Gyrðir Elíasson Ljóðasafn Rumi - Jalaluddin Rumi Yeats : svipmyndir af lífi og ljóðum - W.B. Yeats Ævisögur Herra Hnetusmjör - hingað til - Sóli Hólm Sögur handa Kára - Ólafur Ragnar Grímsson Ellert - Ellert B. Schram og Björn Jón Bragason Dóttir - leið mín til tveggja heimsmeistaratitla - Katrín Tanja Davíðsdóttir og Rory McKiernan Berskjaldaður : Barátta Einars Þórs fyrir lífi og ást - Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Vigdís Jack : Sveitastelpan sem varð prestsfrú - Gyða Skúladóttir Svo týnist hjartaslóð : Þroskasaga Betu Reynis - Valgeir Skagfjörð og Elísabet Reynisdóttir Brosað gegnum tárin - Bryndís Schram Fæddur til að fækka tárum - Káinn - Jón Hjaltason Siddi gull-ævisaga Sigmars Ó. Maríusonar gullsmiðs - Guðjón Ingi Eiríksson Uppsafnað frá áramótum Þagnarmúr - Arnaldur Indriðason Snerting - Ólafur Jóhann Ólafsson Bráðin - Yrsa Sigurðardóttir Orri óstöðvandi - Bókin hennar Möggu Messi - Bjarni Fritzson Vetrarmein - Ragnar Jónasson Útkall á ögurstundu - Óttar Sveinsson Gata mæðranna - Kristín Marja Baldursdóttir Þín eigin undirdjúp - Ævar Þór Benediktsson Fávitar - Sólborg Guðbrandsdóttir UNA prjónabók - Sjöfn Kristjánsdóttir og Salka Sól Eyfeld
Bókaútgáfa Menning Bókmenntir Tengdar fréttir Glænýr bóksölulisti: Stefnir í ein mestu bókajól sögunnar Fyrir viku var Ólafur Jóhann Ólafsson farinn að ógna Arnaldi á toppi listans en Arnaldur hefur rifið upp sokkana því hann eykur forskotið nú. 9. desember 2020 11:25 Nýr bóksölulisti: Ólafur Jóhann sækir hart að Arnaldi Arnaldur heldur fyrsta sæti Bóksölulistans þessa síðustu viku nóvember en mjótt er á mununum á milli hans og Ólafs Jóhanns, munurinn innan við 3 prósent. 2. desember 2020 11:47 Fyrsti bóksölulisti ársins 2020: Algjör sprenging í bóksölu Enn trónir Arnaldur á toppi bóksölulista. Fátt virðist fá því breytt. Íslenskir bókakaupendur eru íhaldssamir. En þó eru nokkrir sem að gera sig líklega til að velgja Arnaldi undir uggum. 25. nóvember 2020 12:36 Mest lesið Að velja rangan maka: „Við gerum oft svo lítið úr ástarmálunum“ Áskorun Landaði hlutverki í íslensku Hallmark-myndinni á hálftíma Bíó og sjónvarp Lively í hart: „Þú veist að við getum grafið hvern sem er“ Bíó og sjónvarp „Ég var alltaf systir bræðranna sem dóu, dóttir bæjarstjórans eða dóttir ráðherrans“ Áskorun Frægir fjölguðu sér árið 2024 Lífið Garðar málari og kvæntur yngstu ömmu landsins Lífið Krakkatían: Jólasveinar, stjörnustríð og þjóðsögur Lífið Fékk Sigurbjörn Árna til að lýsa óhappi í vinnunni Lífið Blaðasnápurinn Stefán Einar fórnar kampavínskóngstitlinum Lífið Fréttatía vikunnar: Lýðheilsa, ísbúð og álag Lífið Fleiri fréttir Jói Pé og Króli skrifa söngleik Féll í myndlist en fann sig sem myndlistarmaður Bestu vinkonur sameinast í listinni Bjarni og Sigurður verði ekki myrtir í bók Borgarleikhúsið setur upp Moulin Rouge 250 sýningar af Elly: „Án hennar væri Íslandssagan öðruvísi“ Heitustu stjörnur listarinnar saman í Ásmundarsal Snorri skein skært í hátíðarbrókinni Engin sé uppskeran ef kartöflurnar eru ekki settar niður Verður ýmist í leyfi eða hlutastarfi á listamannalaunum Þessi fá listamannalaun 2025 Gleðilegir gestir í hátíðarskapi á safninu „Spurning um að fara að sækja réttu kokteilboðin“ Geir og Arnaldur í fangbrögðum á toppnum Í beinni: Dagur íslenskrar tónlistar Reykjavík samdi til þriggja ára við Borgarleikhúsið Bróðir Díönu Prinsessu naut sín í Reykjavík Leikstjóri Forrest Gump mættur til Reykjavíkur 52 ár á milli þeirra og þrjár bækur Ballettdansarinn Vladimir Shklyarov látinn Einar og Sigga á Grund gerð að heiðurslistamönnum Skaðlegt geðheilsunni að reyna að geðjast öðrum Leikfélag Hafnarfjarðar lagt niður Víkingur Heiðar tilnefndur til Grammy-verðlauna Frambjóðendur, sjónvarpsstjörnur og gamlir félagar fögnuðu með Geir Setja upp árekstur og hefja saman rekstur „Þetta eru mjög vondir samningar við Storytel“ Varpa ljósi á mikilvægi og gæði íslenskrar hönnunar „Við þurfum öll að halda í barnið innra með okkur“ Menningarritstjóri ráðinn framkvæmdastjóri Sjá meira
Glænýr bóksölulisti: Stefnir í ein mestu bókajól sögunnar Fyrir viku var Ólafur Jóhann Ólafsson farinn að ógna Arnaldi á toppi listans en Arnaldur hefur rifið upp sokkana því hann eykur forskotið nú. 9. desember 2020 11:25
Nýr bóksölulisti: Ólafur Jóhann sækir hart að Arnaldi Arnaldur heldur fyrsta sæti Bóksölulistans þessa síðustu viku nóvember en mjótt er á mununum á milli hans og Ólafs Jóhanns, munurinn innan við 3 prósent. 2. desember 2020 11:47
Fyrsti bóksölulisti ársins 2020: Algjör sprenging í bóksölu Enn trónir Arnaldur á toppi bóksölulista. Fátt virðist fá því breytt. Íslenskir bókakaupendur eru íhaldssamir. En þó eru nokkrir sem að gera sig líklega til að velgja Arnaldi undir uggum. 25. nóvember 2020 12:36