Vakin er athygli á þessu á fjallamennskuvefnum Adventure Journal þar sem segir að hlíðar K2, næsthæsta fjalls heims, gætu orðið nokkuð fjölmennar á næstu vikum og mánuðum.
Ýmsir hafa reynt við hinn 8.611 metra háa topp fjallsins að vetri til, án árangurs hingað til. Segir í frétt Adventure Journal að litið sé á þetta afrek sem síðasta afrekið í fjallamennsku í Himalaja-fjöllunum sem eftir eigi að vinna.
John Snorri virðist lengst kominn
Af þeim hópum sem ætla sér að reyna að klífa K2 þetta vetrartímabilið virðist John Snorri vera lengst kominn. Þar á eftir er hópur Mingma Gyalje, en í færslu á Facebook segir hann að það sé af og frá að einhvers konar keppni sé á milli hópanna fjögurra, það lýsi sér best í því að hóparnir stefni á tindinn á mismunandi tímum eftir eigin áætlunum.

Fjölmennur hópur á vegum Seven Summit virðist einnig stefna á fjallið öðru hvorum megin við áramót, en óvíst er um tímalínu fjórða hópsins. Litið er á tímabilið frá byrjun desember til febrúarloka sem vetrartímabilið á K2 og er það sá gluggi sem garparnir hafa til þess að komast upp.
En þrátt fyrir að undirbúningur John Snorra sé vel á veg kominn í fjallinu sjálfu segir það í raun lítið um hvort að hann sé þá „í fyrsta sæti“ af hópunum fjórum eins og staðan er núna, ef svo mætti að orði komast. Það er ekki í raun fyrr en um miðjan janúar sem reiknað er með að atlagan að tindinum hefjist. Þannig reiknar John Snorri með um mánuði í undirbúningsvinnu í fjallinu áður en reynt er við toppinn.
Smám saman munu svo hinir hóparnir bætast við og miðað við stærð eins þeirra gæti orðið þröngt á þingi á fjallinu á næstu vikum og mánuðum.
Er í grunnbúðunum
John Snorri er nú staddur í grunnbúðum K2, í um 4.900 metra bæ þar sem bækistöðvarnar verða næstu vikur og mánuði á meðan þeir feta sig upp fjallið. Með John Snorra í för eru feðgar frá Pakistan, þrautreyndir fjallgöngumenn.
Miðað við nýjustu uppfærslu Johns Snorra er næsta skref að komast í ABC-búðirnar svokölluðu í 5.400 metra hæð, en gluggi til að hefja þá vegferð opnast í dag.
Um sextíu manns verða á fjallinu
Sem fyrr segir kemur fram í umfjöllun Adventure Journal að John Snorri sé langt í frá sá eini sem ætli sér að vera fyrstur upp á topp K2 að vetrarlagi. Þannig sé 45 manna hópur á vegum Seven Summit Trek með ferð á dagskránni á næstunni.
Sá hópur inniheldur 21 Sjerpa og 24 viðskiptavini en ef marka má Facebook-síðu fyrirtækisins er undirbúningur á ferðinni í fullum gangi. Sjerpar á vegum fyrirtækisins eru þegar mættir, búnaður kominn í grunnbúðirnar og reiknað með að viðskiptavinirnir mæti á svæðið fyrir áramót.
Hinir hóparnir tveir eru öllu minni en samanlagt má reikna með að um 60 manns verði á fjallinu þetta vetrartímabilið.
Þannig hyggst Sjerpinn Mingma Gyalje, leiðsögumaðurinn sem var með John Snorra fyrir um ári síðan þegar hann reyndi við K2 síðast, freista þess að komast upp á topp.
Ósáttur við viðskiptin við Mingma eftir síðustu ferð
Mingma er nú í Pakistan að undirbúa atlöguna en í viðtali sagðist hann reikna með að hefja fjallgönguna um miðjan desember. Hann er á ferð með tveimur öðrum Sjerpum.
Í umfjöllun Adventure Journal segir að þeir þrír ætli sér að klifra upp fjallið án aðstoðar aukasúrefnis.
Töluvert var fjallað um síðustu ferð Johns Snorra á K2 fyrir um ári síðan. Hætta þurfti við atlöguna að toppi fjallsins. Í fyrstu sagði John Snorri að ástæðan væri sú að tveir meðlima hópsins hafi ekki treyst sér til þess að halda áfram, sökum persónulegra ástæðna.
Í ítarlegu viðtali við Morgunblaðið nokkrum vikum síðar fór John Snorri nánar yfir ástæður þess að hætt var við að klífa upp á topp. Þar lýsti hann grun sínum á því að ekki hafi allir leiðangursmenn verið með í för af heilum hug, þar á meðal áðurnefndur Mingma.
„Það vantaði allan kraft í hann, [Mingma] ég upplifði hann í ekki nógu góðu formi og þreyttan,“ var haft eftir John Snorra í Morgunblaðinu.
Í bréfi sem Thomasz Rotar, félagi John Snorra í leiðangrinum birti, voru einnig settar spurningar við það af hverju vegabréfsáritun Mingma og félagi hafi gilt í styttri tíma en reiknað var með að þyrfti í alla ferðina.
Auk þess sagði Tomasz frá því að í ljós hafi komið að matarbirgðirnar sem hópurinn hafði með sér í grunnbúðirnar dugðu einungis fyrir hópinn í einn mánuð, en það hafi verið Mingma G. sem sá um að panta matarbirgðirnar.
Vel undirbúinn í þetta skiptið
Í færslu á Facebook segist Mingma hafa dregið ýmsa lærdóma af síðustu vetrarferð á K2, og að nú verði snúið aftur eftir „fullan undirbúning“.
Ef marka má orð Mimga í viðtali vegna ferðar sinnar nú er ljóst að hann og John Snorri munu hittast á nýjan leik á fjallinu, en þar sagði Mingma að allir hóparnir fjórir yrðu að vinna saman þegar á fjallið væri komið.
Í færslu á Facebook-segist Mingma einnig reikna með að vera í grunnbúðunum þann 20. desember og hefja undirbúning og klifur eftir því sem veður leyfir.
Mikill ævintýramaður stýrir þeim fjórða
Leiðtogi fjórða og síðasta hópsins er Nirmal Purja sem var afar upptekinn á síðasta ári. Þá klifraði hann upp á topp þeirra fjórtán tinda sem ná átta þúsund metra eða meira yfir sjávarmál á rétt rúmlega hálfu ári.
Í umfjöllun Adventure Journal segir reyndar að litlar upplýsingar hafi fengist um fyrirhugaða ferð Purja upp á K2, annað en það að hann ætli sér ekki að notast við aukasúrefni, auk þess sem að hann hafi hug á því fljúga niður af toppi fjallsins með svifvængjum.
As I’m moving into the second year of my professional mountaineering career, I want to keep pushing the boundaries of human potential with another yet ultimate challenge: #K2winter expedition. I hope you are as excited as I am. Find more information on https://t.co/aCMzWSN9oD🙌🏽 pic.twitter.com/S2veShOjAw
— Nirmal Purja MBE (@nimsdai) November 26, 2020
Ef marka má Facebook-síðu hans var hann staddur í Nepal við æfingar fyrir nokkrum dögum.
Það gæti því stefnt í kapphlaup um það á næstu vikum hver fær titilinn fyrsti fjallagarpurinn til þess að klífa K2 að vetrarlagi.