Gylfi lagði upp sigurmarkið þegar Arsenal tapaði enn einum leiknum Arnar Geir Halldórsson skrifar 19. desember 2020 19:27 Gylfi lagði upp mark fyrir Yerri Mina. vísir/Getty Vandræði Arsenal í ensku úrvalsdeildinni halda áfram en liðið tapaði fyrir Everton á Goodison Park í kvöld. Íslenski landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson var í byrjunarliði Everton og bar fyrirliðabandið. Varnarmaðurinn seinheppni í liði Arsenal, Rob Holding, kom Everton yfir með klaufalegu sjálfsmarki á 22.mínútu. á 35.mínútu jafnaði Nicolas Pepe metin fyrir Arsenal með marki úr vítaspyrnu sem dæmd hafði verið á Tom Davies. Heimamenn fóru engu að síður með forystu í leikhléið þar sem Yerri Mina skallaði hornspyrnu Gylfa í netið á síðustu mínútu fyrri hálfleiks. Ekkert mark var skorað í síðari hálfleiknum og 2-1 sigur Everton staðreynd. Arsenal vann síðast deildarleik þann 1.nóvember síðastliðinn og situr liðið nú í 15.sæti deildarinnar, fimm stigum frá fallsvæðinu. '14 points from 14 games.' 'We're an embarrassment to the Arsenal legacy.' 'Arsenal are in a relegation battle.'https://t.co/da0BbPnl3O— SPORTbible (@sportbible) December 19, 2020 Fótbolti Enski boltinn