Ólafur Jóhann skýtur glæpasagnaþríeykinu ref fyrir rass Jakob Bjarnar skrifar 23. desember 2020 10:37 Undur og stórmerki. Ólafur Jóhann hefur velt Arnaldi kóngi Indriðasyni úr hásæti sínu en hann hefur lengi einokað toppsæti bóksölulistanna fyrir jólin. Ólafur Jóhann Ólafsson hefur komið sér vel fyrir í fyrsta sæti bóksölulista Félags íslenskra bókaútgefenda (Fibut) með Snertingu sem hlotið hefur verðskuldað lof lesenda og gagnrýnenda, auk þess að vera einn besti titill ársins.
Eða svo segir Bryndís Loftsdóttir hjá Fibut, sérfræðingur Vísis í bóksölunni. Vísir birtir nú allra síðasta bóksölulistann fyrir þessi jól. Ekki seinna vænna. Þorláksmessa. Listinn sætir tíðindum. Arnaldur, sem hefur einokað listann í mörg herrans ár, þarf að láta í minni pokann fyrir Ólafi Jóhanni með sína snertingu. Reyndar nær Yrsa Sigurðardóttir, glæpasagnadrottningin, að ýta honum aftur fyrir sig líka en listinn sem nú er birtur tekur til daganna 14. til 20. desember. Síðast þegar tókst að velta Arnaldi úr hásætinu var árið 2012. Þá kom fram einhver óvæntasti smellur bóksölunnar, eða svarti hestur eins og þau í bókabransanum kalla slík fyrirbæri; Gísli á Uppsölum eftir Ingibjörgu Reynisdóttur. Árin á undan hafði Arnaldur haft tögl og hagldir á sölulistum. Listinn byggir á sölutölum frá eftirfarandi útsölustöðum bóka; A4, Bóksölu stúdenta, Bónus, Hagkaup, Samkaup verslana, Heimkaup, Forlagsverslunarinnar og Kaupfélags Skagfirðinga – það er í raun frá öllum helstu útsölustöðum bóka á landinu nema frá Eymundsson. Kápan og titillinn skipta máli En ef marka má Bryndísi er velgengni Ólafs Jóhanns engin tilviljun. „Það er svo mikil sögn í þessum titli hans Ólafs Jóhanns. Það er einfaldlega góð tilfinning að gefa Snertingu, jafnvel þótt hún sé innpökkuð. Bryndís Loftsdóttir hjá Fibut, sérfræðingur Vísis í bóksölunni, segir titil og kápu skipta máli og þar hittir útgefandi Ólafs Jóhanns í mark. Kápumynd bókarinnar, eftir Ragnar Helga Ólafsson, styður hlýju titilsins af öryggi, rauð kápa og ullarfrakki vefjast saman í þéttu faðmlagi á sterkri snúru. Í fjarlægð liggur önnur, ógreinileg snúra sem virðist vera að strokast út... Ég ætla ekki að taka það af Ólafi að sagan er góð en sem gamall bóksali þá veit ég að titillinn og kápan skipta líka miklu máli á okkar einstaka jólabóka-gjafamarkaði. Maður vill ekki pakka inn bók sem ber titilinn „Skítsama“ fyrir einhvern sem manni þykir vænt um,“ segir Bryndís. En svo má snúa þessu öllu á hvolf þegar kemur að glæpasagnatitlunum. Í öðru sæti listans situr Yrsa Sigurðardóttir með Bráðina. „Glæpasagnatitlar þurfa auðvitað að vekja spennu og óhug, helst með einhverri undirliggjandi óvissu og það neglir Yrsa í ár, enda sagan skrifuð undir áhrifum óhugnanlegs máls sem engin niðurstaða hefur fengist í.“ Þagnarmúr Arnaldar Indriðasonar er enn söluhæsta bók ársins en verður að láta sér nægja þriðja sæti Bóksölulistans þessa vikuna. Bryndís segir það hugsanlegt að Ólafur Jóhann muni jafnvel ná að mjaka sér upp fyrir Arnald á „Uppsafnað-listanum“ þegar árið verður gert upp. Sterk staða skáldsögunnar Eftirtektarverð er sterk staða íslenskra skáldverka í jólabókasölunni í ár. Af 15 mest seldu bókunum þessa vikuna eru 10 þeirra íslensk skáldverk, 3 barnabækur og 2 fræðibækur. Bryndís bendir á að til samanburðar megi nefna að á sama tíma í fyrra voru skáldverkin 8 af 15 mest seldu bókunum en þá komu þó út 98 prentuð skáldverk samkvæmt Bókatíðindum en þau eru heldur færri núna, eða 75. „Við höfum ástæðu til að gleðjast yfir góðum móttökum íslenskra bóka, útlit er fyrir um 20 prósenta söluaukningu frá fyrsta nóvember, miðað við í fyrra. Salan dreifist líka óvenju mikið á milli titla, svo virðist sem kaupendur hafi kynnt sér úrvalið vel, það eru ekki allir að kaupa sömu bókina.“ Bryndís segir þetta minnka líkurnar á því að fólk þurfi að skipta bókum eftir jól enda miklu betra, og jafnvel einhver „andleg snerting“ fólgin í því að eiga fágætari verk til að skiptast á við aðra bókaunnendur, að lestri loknum. Topplistinn 14-20. desember 2020 Snerting - Ólafur Jóhann Ólafsson Bráðin - Yrsa Sigurðardóttir Þagnarmúr - Arnaldur Indriðason Vetrarmein - Ragnar Jónasson Syngdu með Láru og Ljónsa - Birgitta Haukdal Spænska veikin - Gunnar Þór Bjarnason Gata mæðranna - Kristín Marja Baldursdóttir Útkall - Á ögurstundu - Óttar Sveinsson Orri óstöðvandi - Bókin hennar Möggu Messi - Bjarni Fritzson Dýralíf - Auður Ava Ólafsdóttir Þín eigin undirdjúp - Ævar Þór Benediktsson Fjarvera þín er myrkur - Jón Kalman Stefánsson Yfir bænum heima - Kristín Steinsdóttir Eldarnir : Ástin og aðrar hamfarir - Sigríður Hagalín Björnsdóttir Dauðabókin - Stefán Máni Skipulag - Sólrún Diego Öflugir strákar: Trúðu á sjálfan þig - Bjarni Fritzson Undir Yggdrasil - Vilborg Davíðsdóttir UNA prjónabók - Sjöfn Kristjánsdóttir og Salka Sól Eyfeld Sögur handa Kára - Ólafur Ragnar Grímsson Íslensk skáldverk Snerting - Ólafur Jóhann Ólafsson Bráðin - Yrsa Sigurðardóttir Þagnarmúr - Arnaldur Indriðason Vetrarmein - Ragnar Jónasson Gata mæðranna - Kristín Marja Baldursdóttir Dýralíf - Auður Ava Ólafsdóttir Fjarvera þín er myrkur - Jón Kalman Stefánsson Yfir bænum heima - Kristín Steinsdóttir Eldarnir : Ástin og aðrar hamfarir - Sigríður Hagalín Björnsdóttir Dauðabókin - Stefán Máni Undir Yggdrasil - Vilborg Davíðsdóttir Blóðrauður sjór - Lilja Sigurðardóttir Blóðberg - Þóra Karítas Árnadóttir Aprílsólarkuldi - Elísabet Kristín Jökulsdóttir Konan sem elskaði fossinn : Sigríður í Brattholti - Eyrún Ingadóttir Sykur - Katrín Júlíusdóttir 07 Reykjavík - Auður Jónsdóttir og Birna Anna Björnsdóttir Hansdætur - Benný Sif Ísleifsdóttir Bróðir - Halldór Armand Truflunin - Steinar Bragi Næturskuggar - Eva Björg Ægisdóttir Ein - Ásdís Halla Bragadóttir Dauði skógar - Jónas Reynir Gunnarsson Klettaborgin - Sólveig Pálsdóttir Herbergi í öðrum heimi - María Elísabet Bragadóttir Váboðar - Ófeigur Sigurðsson Aldrei nema kona - Sveinbjörg Sveinbjörnsdóttir Aðventa - Gunnar Gunnarsson Hrímland - Skammdegisskuggar - Alexander Dan Vilhjálmsson Kórdrengur í Kaupmannahöfn - Jón Óskar Sólnes Íslenskar barna- og ungmennabækur Syngdu með Láru og Ljónsa - Birgitta Haukdal Orri óstöðvandi - Bókin hennar Möggu Messi - Bjarni Fritzson Þín eigin undirdjúp - Ævar Þór Benediktsson Öflugir strákar: Trúðu á sjálfan þig - Bjarni Fritzson Fávitar - Sólborg Guðbrandsdóttir Krakkalögin okkar - Jón Ólafsson, Úlfur Logason ofl. Lára lærir að lesa - Birgitta Haukdal Barnaræninginn - Gunnar Helgason Leikskólalögin okkar - Jón Ólafsson, Úlfur Logason ofl. Lára fer í leikhús - Birgitta Haukdal Hestar - Hjörleifur Hjartarson og Rán Flygenring Vampírur, vesen og annað tilfallandi - Rut Guðnadóttir Hetja - Björk Jakobsdóttir Brandarar og gátur 5 - Huginn Þór Grétarsson Fótboltaspurningar 2020 - Bjarni Þór Guðjónsson 13 þrautir jólasveinanna - Huginn Þór Grétarsson Skógurinn - Hildur Knútsdóttir Spurningabókin 2020 - Guðjón Ingi Eiríksson Gamlárskvöld með Láru - Birgitta Haukdal Iðunn og afi pönk - Gerður Kristný Þýddar barna- og ungmennabækur Jólaföndur : leikja-, lita og límmiðabók - Bókafélagið Jólasyrpa - Walt Disney Verstu kennarar í heimi - David Walliams Dagbók Kidda klaufa 3 : Snjóstríðið - Jeff Kinney Fótbolti - Meistarataktar - Rob Colson Ísskrímslið - David Walliams Dísa ljósálfur - G.T. Rotman Sögur úr Múmíndal - Tove Jansson Jólaföndur : engin skæri, bara gaman - Unga ástin mín Ding! Dong! Komum að leika! - Astley Baker Dagbók Kidda klaufa : Flóttinn í sólina - Jeff Kinney Risaeðlugengið : Kappsundið - Lars Mæhle Mannslíkaminn - Ryan Hobson Milljarðastrákurinn - David Walliams Hundmann - Taumaus - Dav Pilkey Gurra Grís :leitið og finnið ævintýri - Peppa Pig Söguperlur fyrir svefninn - Setberg Lúkas ljónheppni - Kate Thomson Jörðin - Bomboland Sögutaskan mín - Isabelle Chauvet Fræði og almennt efni Spænska veikin - Gunnar Þór Bjarnason Útkall - Á ögurstundu - Óttar Sveinsson Skipulag - Sólrún Diego UNA prjónabók - Sjöfn Kristjánsdóttir og Salka Sól Eyfeld Kökur - Linda Ben Skipulagsdagbók - Sólrún Diego Þegar heimurinn lokaðist - Davíð Logi Sigurðsson Íslenskir vettlingar - Guðrún Hannele Henttinen Bubbi Morthens - ferillinn í fjörtíu ár - Árni Matthíasson Fimmaurabrandarar - Fimmaurafélagið Bakað með Elenoru Rós - Elenora Rós Georgsdóttir Martröð í Mykinesi - Magnús Þór Hafsteinsson Kindasögur II - Aðalsteinn Eyþórsson og Guðjón Ragnar Jónasson Hrein Karfa - Kjartan Atli Kjartansson Liverpool, flottasti klúbbur í heimi - Illugi Jökulsson Prjónað á mig og mína - Lene Holme Samsøe Tíu skref í átt að innihaldsríku lífi - Bergsveinn Ólafsson Sumac - Þráinn Freyr Vigfússon Brimaldan stríða - Steinar J. Lúðvíksson Saumaklúbburinn - Berglind Hreiðarsdóttir Þess vegna sofum við : um mikilvægi svefns og drauma - Matthew Walker Fuglinn sem gat ekki flogið - Gísli Pálsson Pottur, panna og Nanna - Nanna Rögnvaldardóttir Samskipti - Pálmar Ragnarsson Björgunarsveitin mín - Arngrímur Hermannsson Hulduheimar - Símon Jón Jóhannsson Prjónað af ást - Lene Holme Samsøe Uppreisn Jóns Arasonar - Ásgeir Jónsson Mótorhausasögur - Ragnar S. Ragnarsson Hjarta Íslands - Gunnsteinn Ólafsson og Páll Stefánsson Þýdd skáldverk Kóngsríkið - Jo Nesbø Jól í Sumareldhúsi Flóru - Jenny Colgan Brúðkaup í desember - Sarah Morgan Silfurvængir - Camilla Läckberg Lygalíf fullorðinna - Elena Ferrante Þeir sem græta góðu stúlkurnar - Mary Higgins Clark Papa - Jesper Stein Menntuð - Tara Westover Leyfðu mér að segja þér sögu - Jorge Bucay Mitt (ó)fullkomna líf - Sophie Kinsella Ljóð og limrur Gervilimrur Gísla Rúnars - Gísli Rúnar Björgvinsson Látra-Björg - Helgi Jónsson 40 vísnagátur - Páll Jónasson Ljóðasafn Rumi - Jalaluddin Rumi Draumstol - Gyrðir Elíasson Innræti - Arndís Þórarinsdóttir Hetjusögur - Kristín Svava Tómasdóttir Fjölskyldulíf á jörðinni - Dagur Hjartarson Taugaboð á háspennulínu - Arndís Lóa Magnúsdóttir 1900 og eitthvað - Ragnheiður Lárusdóttir Ævisögur Sögur handa Kára - Ólafur Ragnar Grímsson Herra Hnetusmjör - hingað til - Sóli Hólm Berskjaldaður : Barátta Einars Þórs fyrir lífi og ást - Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Ellert - Ellert B. Schram og Björn Jón Bragason Vigdís Jack : Sveitastelpan sem varð prestsfrú - Gyða Skúladóttir Svo týnist hjartaslóð : Þroskasaga Betu Reynis - Valgeir Skagfjörð og Elísabet Reynisdóttir Dóttir - Katrín Tanja Davíðsdóttir Brosað gegnum tárin - Bryndís Schram Glæpur við fæðingu - Trevor Noah Siddi gull-ævisaga Sigmars Ó. Maríusonar gullsmiðs - Guðjón Ingi Eiríksson Uppsafnað frá áramótum Þagnarmúr - Arnaldur Indriðason Snerting - Ólafur Jóhann Ólafsson Bráðin - Yrsa Sigurðardóttir Vetrarmein - Ragnar Jónasson Orri óstöðvandi - Bókin hennar Möggu Messi - Bjarni Fritzson Útkall á ögurstundu - Óttar Sveinsson Gata mæðranna - Kristín Marja Baldursdóttir Spænska veikin - Gunnar Þór Bjarnason Þín eigin undirdjúp - Ævar Þór Benediktsson Fávitar - Sólborg Guðbrandsdóttir
Bókaútgáfa Menning Jól Verslun Bókmenntir Tengdar fréttir Síðasti bóksölulistinn fyrir jól: Ólafur Jóhann veltir Arnaldi úr hásæti sínu Bóksala hefur sjaldan eða aldrei verið meiri en nú. 16. desember 2020 11:03 Glænýr bóksölulisti: Stefnir í ein mestu bókajól sögunnar Fyrir viku var Ólafur Jóhann Ólafsson farinn að ógna Arnaldi á toppi listans en Arnaldur hefur rifið upp sokkana því hann eykur forskotið nú. 9. desember 2020 11:25 Nýr bóksölulisti: Ólafur Jóhann sækir hart að Arnaldi Arnaldur heldur fyrsta sæti Bóksölulistans þessa síðustu viku nóvember en mjótt er á mununum á milli hans og Ólafs Jóhanns, munurinn innan við 3 prósent. 2. desember 2020 11:47 Mest lesið Landaði hlutverki í íslensku Hallmark-myndinni á hálftíma Bíó og sjónvarp Að velja rangan maka: „Við gerum oft svo lítið úr ástarmálunum“ Áskorun Lively í hart: „Þú veist að við getum grafið hvern sem er“ Bíó og sjónvarp Garðar málari og kvæntur yngstu ömmu landsins Lífið Frægir fjölguðu sér árið 2024 Lífið Krakkatían: Jólasveinar, stjörnustríð og þjóðsögur Lífið Fékk Sigurbjörn Árna til að lýsa óhappi í vinnunni Lífið Blaðasnápurinn Stefán Einar fórnar kampavínskóngstitlinum Lífið Fréttatía vikunnar: Lýðheilsa, ísbúð og álag Lífið Innlit á æfingu Jólagesta: „Allt þarf að taka endi“ Tónlist Fleiri fréttir Jói Pé og Króli skrifa söngleik Féll í myndlist en fann sig sem myndlistarmaður Bestu vinkonur sameinast í listinni Bjarni og Sigurður verði ekki myrtir í bók Borgarleikhúsið setur upp Moulin Rouge 250 sýningar af Elly: „Án hennar væri Íslandssagan öðruvísi“ Heitustu stjörnur listarinnar saman í Ásmundarsal Snorri skein skært í hátíðarbrókinni Engin sé uppskeran ef kartöflurnar eru ekki settar niður Verður ýmist í leyfi eða hlutastarfi á listamannalaunum Þessi fá listamannalaun 2025 Gleðilegir gestir í hátíðarskapi á safninu „Spurning um að fara að sækja réttu kokteilboðin“ Geir og Arnaldur í fangbrögðum á toppnum Í beinni: Dagur íslenskrar tónlistar Reykjavík samdi til þriggja ára við Borgarleikhúsið Bróðir Díönu Prinsessu naut sín í Reykjavík Leikstjóri Forrest Gump mættur til Reykjavíkur 52 ár á milli þeirra og þrjár bækur Ballettdansarinn Vladimir Shklyarov látinn Einar og Sigga á Grund gerð að heiðurslistamönnum Skaðlegt geðheilsunni að reyna að geðjast öðrum Leikfélag Hafnarfjarðar lagt niður Víkingur Heiðar tilnefndur til Grammy-verðlauna Frambjóðendur, sjónvarpsstjörnur og gamlir félagar fögnuðu með Geir Setja upp árekstur og hefja saman rekstur „Þetta eru mjög vondir samningar við Storytel“ Varpa ljósi á mikilvægi og gæði íslenskrar hönnunar „Við þurfum öll að halda í barnið innra með okkur“ Menningarritstjóri ráðinn framkvæmdastjóri Sjá meira
Síðasti bóksölulistinn fyrir jól: Ólafur Jóhann veltir Arnaldi úr hásæti sínu Bóksala hefur sjaldan eða aldrei verið meiri en nú. 16. desember 2020 11:03
Glænýr bóksölulisti: Stefnir í ein mestu bókajól sögunnar Fyrir viku var Ólafur Jóhann Ólafsson farinn að ógna Arnaldi á toppi listans en Arnaldur hefur rifið upp sokkana því hann eykur forskotið nú. 9. desember 2020 11:25
Nýr bóksölulisti: Ólafur Jóhann sækir hart að Arnaldi Arnaldur heldur fyrsta sæti Bóksölulistans þessa síðustu viku nóvember en mjótt er á mununum á milli hans og Ólafs Jóhanns, munurinn innan við 3 prósent. 2. desember 2020 11:47